Hundrað þúsund örnefni í gagnagrunni Svavar Hávarðsson skrifar 16. janúar 2016 07:00 Um 10.000 örnefni hafa bæst í grunninn á hverju ári. mynd/LMÍ
Sá áfangi náðist hjá Landmælingum Íslands í desember að yfir 100.000 örnefni höfðu verið staðsett og skráð í örnefnagrunn stofnunarinnar. Mikið átak hefur verið í skráningu örnefna á undanförnum áratug og hafa um 10.000 örnefni bæst í grunninn á hverju ári. Tveir starfsmenn sinna þessari skráningu eingöngu. Þetta kemur fram í Kvarðanum, fréttabréfi LMÍ. Þar segir að stór hluti skráningarinnar sé unninn af áhugafólki utan stofnunarinnar. Þar er um að ræða einstaklinga og félög sem hafa sérþekkingu á ákveðnu svæði og skrá, staðsetja eða hjálpa til við skráningu og staðsetningu örnefna beint ofan í grunn Landmælinga Íslands í gegnum netið. Til að tryggja rétta staðsetningu örnefna er þörf fyrir nákvæm myndgögn og undanfarin ár hefur stofnunin notað loftmyndir frá Samsýn og ýmis gervitunglagögn í eigu stofnunarinnar. Í byrjun vetrar bættust við loftmyndir frá Loftmyndum ehf. sem bakgrunnsgögn við skráningu og opnar sú viðbót á nákvæma skráningu örnefna á öllu landinu. Samstarf við heimildarmenn víða um land við skráningu örnefna eru Landmælingum mikilvæg, og er nokkurra þeirra sérstaklega getið í Kvarðanum. Félags aldraðra í Borgarfirði er sérstaklega getið auk tveggja einstaklinga; Gunnþóru Gunnarsdóttur frá Hnappavöllum sem skráði og staðsetti um 600 örnefni og Sigurgeirs Jónssonar á Fagurhólsmýri sem skráði og staðsetti um 800 örnefni.
Mest lesið Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Kvikuhlaup hafið í Svartsengi Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira