Mælingar úr háloftunum sagðar skila nákvæmari veðurspám Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 13. janúar 2016 07:00 Loftbelg til veðurathuguna sleppt. Mynd/Veðurstofan „
Það hefur sýnt sig að villur í langtímaveðurspám eiga oft rætur sínar að rekja til háloftanna,“ segir Haraldur Ólafsson veðurfræðingur en Veðurstofa Íslands sleppti í gær loftbelg upp í háloftin sem ætlað er að mæla vind, hita, raka, loftþrýsting og ryk í um tuttugu kílómetra hæð. Haraldur segir sambærilegar mælingar á ryki undanfarið hafa sýnt um tuttugu þúsund rykagnir í hverjum lítra lofts. „Þetta er töluvert mikið meira en í sambærilegri hæð yfir jörðu sunnar á hnettinum. Það staðfestir þann grun sem fyrir lá um að það væri fullt af ryki í háloftalægðinni sem er yfir norðurskautinu á veturna, og fimm til tíu sinnum meira en sunnar á hnettinum,“ segir Haraldur. Þá segir hann koma fyrir að magn rykmengunar í veðurspálíkönum kunni að vera rangt með farið og það valdi skekkjum í langtímaveðurspám. Það gerist af því að rykagnirnar stöðva hluta af orku sólarinnar sem breytir hitastigi í háloftunum. Hitinn stýrir síðan vindakerfinu. Mæling á magni rykmengunar mun að sögn Haraldar hjálpa til við að skila nákvæmari veðurspám. „Margt bendir til þess að þessar agnir séu þarna fastar og að þær geti hangið þarna árum saman,“ segir Haraldur og bendir á að meðal þess sem ýti undir þá tilgátu sé sú staðreynd að agnirnar séu þéttari en sunnar á hnettinum.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira