Sunna og Hildigunnur fögnuðu dramarískum sigri með Heid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2015 19:31 Hildigunnur Einarsdóttir. Vísir/Valli
Landsliðskonurnar Sunna Jónsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir fögnuðu dramatískum sigri með liði sínu BK Heid í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. BK Heid vann þá 20-19 sigur á VästeråsIrsta HF þar sem sigurmarkið kom aðeins tveimur sekúndum fyrir leikslok. Louise Karlsson var hetja síns liðs en eina mark hennar í leiknum var þetta sigurmark. Íslensku stelpurnar skoruðu sjö mörk saman og nýttu skotin sín vel. Sunna Jónsdóttir skoraði 4 mörk úr 5 skotum og gaf að auki 4 stoðsendingar. Tvö af mörkum Sunnu komu af vítalínunni. Hildigunnur nýtti öll þrjú skotin sín í leiknum. BK Heid var 13-11 yfir í hálfleik og Hildigunnur kom liðinu í 14-11 með því að skora fyrsta markið í seinni hálfleiknum. VästeråsIrsta HF svaraði þá með fjórum mörkum í röð og komst í 15-14. Lokamínúturnar voru æsispennandi og náði að jafna metin tíu sekúndum fyrir leikslok en það dugði ekki því leikmenn BK Heid brunuðu fram völlinn og tókst að skora sigurmarkið. BK Heid var tveimur sætum og fimm stigum á eftir VästeråsIrsta fyrir leikinn og sigurinn mun hjálpa liðinu að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.
Handbolti Mest lesið Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Íslenski boltinn FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Fleiri fréttir Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Sjá meira