Senegalskur flóttamaður vann 57 milljónir í spænska lottóinu Atli Ísleifsson skrifar 23. desember 2015 23:21 Ngagne trúir því ekki að hafa unnið svo háa upphæð í lottóinu. Vísir/EPA
Flóttamaður frá Senegal vann í vikunni um 400 þúsund evrur, um 57 milljónir króna, í spænska jólalottínu – „El Gordo“ eða „þeim feita“. Hinn 35 ára Ngagne hafði keypt hlut í einum lottómiða sem reyndist vinningsmiði með númerið 79140.Í frétt danska ríkisútvarpsins segir að Ngagne hafi verið bjargað af spænsku strandgæslunni fyrir átta árum á ferð sinni yfir Miðjarðarhaf, frá norðurströnd Afríku og til Evrópu. Hann var þá um borð í báti, ásamt 65 öðrum, meðal annars konu sem nú er eiginkona Ngagne. Hann starfaði sem garðyrkjumaður í Almeria-héraði í Andalúsíu eftir að hann kom til Spánar. „Ég vil gjarnan þakka Spánverjum og spænsku ríkisstjórninni fyrir að bjarga mér þegar ég var á hafi úti,“sagði Ngagne þegar hann ræddi við fréttamenn. Hann sagðist einfaldlega ekki trúa því að hafa unnið svo stóra fjárhæð. „Það hafa komið tímabil þar sem ég hef ekki einu sinni þénað fimm evrur á dag.“ Ngagne var einn af fjölmörgum lottóspilurum sem keyptu miða með vinningsnúmerinu, en potturinn stóð í fjórum milljónum evra.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira