Fangar á Litla-Hrauni telja að brotið sé á þeim Nadine Guðrún Yaghi skrifar 4. ágúst 2015 07:00 Í kærunni segir að fangar í öðrum fangelsum en Litla-Hrauni þurfi ekki að stimpla sig inn til þess að eiga rétt á dagpeningum. fréttablaðið/e.ól
Fangar á Litla-Hrauni telja að brotið sé á þeim með því að þeir fái ekki greidda dagpeninga sem þeim ber á fá samkvæmt lögum, nema þeir skrái sig inn til vinnu. Einn fanganna kærði málið til Fangelsismálastofnunar. Í kærunni segir að um margra ára skeið hafi það tíðkast á Litla-Hrauni að sumir fangar þurfi að mæta og stimpla sig inn til vinnu til þess að eiga rétt á því að fá dagpeninga greidda. Fangar í öðrum fangelsum þurfi ekki að stimpla sig inn til þess að eiga rétt á dagpeningum. Það fari gegn lögum um fangelsi og fangavist, en samkvæmt þeim skulu fanga ákvarðaðir dagpeningar ef hann er ekki settur til vinnu. Þetta fari gegn jafnræðisreglu.Páll Winkel fréttablaðið/andri marínó„Ástæða þess að fangar á Litla-Hrauni þurfa að stimpla sig inn er sú að við reynum að halda lámarksvirkni. Fangar sem ekki nenna eða ekki geta unnið þurfa þá í það minnsta að fara á fætur og láta vita af sér,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri og bætir við að það sé öllum hollt að fara á fætur einu sinni á dag. Páll segir að reglurnar eigi einungis við á Litla-Hrauni vegna þess að í hinum fangelsunum séu fangar ýmist í námi eða vinnu. „Það reynir lítið á þetta í öðrum fangelsum. Til þess að tryggja jafnræði væri þó hugsanlegt að bregðast við þessari kvörtun með því að taka þetta upp í hinum fangelsunum,“ segir Páll. „Það verður alveg skoðað.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira