"Heims um ból“ í hjarta þúsunda kirkjugesta á jóladag Heimir Már Pétursson skrifar 25. desember 2015 18:47 Fullt var út úr dyrum í jóladagsmessu í Hallgrímskirkju í dag þar sem Mótettu kór kirkjunnar söng. Vísir/GVA
Það viðraði vel til messuhalds á höfuðborgarsvæðinu í dag og vel mætt í margar þeirra. Í Landakotskirkju fóru fram messur á nokkrum tungumálum en biskup Íslands átti hins vegar ekki heimangengt vegna flensu. Þúsundir manna sóttu guðsþjónustur í kirkjum landsins í dag og í Hallgrímskirkju var full út úr dyrum í hátíðarmessu sem hófst klukkan tvö. Biskupinn yfir Íslandi, Agnes M. Sigurðardóttir, lá hins vegar heima í flensu. „Ég er nú aðeins komin með röddina aftur. En það er bara rétt að koma í mig rödd aftur núna,“ sagði Agnes í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. Það mætti því segja að vegir Guðs væru órannsakanlegir. „Og það er dálítið merkilegt líka að hugsa til þess að jólin koma í raun og veru til allra, hvort sem þeir eru kristinnar trúar eða ekki,“ bætti hún við. Í dómkirkjunni hljóp séra Sveinn Valgeirsson í skarðið fyrir Agnesi en hún segir presta hafa mikið að gera yfir jólahátíðina, sérstaklega á landsbyggðinni þar sem hver og einn sinni mörgum kirkjum. Í dómkirkju kaþólska á Landakoti voru fjórar messur í dag á íslensku, pólsku, litháísku og ensku.Í hátíðarmessunni í Hallgrímskirkju þjónaði og predikaði séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir þar sem einnig mátti sjá fólk af mörgum þjóðernum. Mótettukór Hallgrímskirkju söng meðal annars sálminn fallega sem tilheyrir jólunum meira en flestir aðrir sálmar, Heims um ból, sem sjá má í sjónvarpsfréttinni hér að ofan.
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira