Loftárásirnar skilja eftir sig gríðarlegt tjón Guðsteinn Bjarnason skrifar 23. apríl 2015 12:00 Jemenskir sprengjuleitarmenn tóku strax í gær til við að safna saman sprengjum og sprengjubúnaði í höfuðborginni Sana. fréttablaðið/EPA
Fáeinum klukkustundum eftir að Sádi-Arabía lýsti því yfir í gærmorgun, að loftárásum á uppreisnarmenn í Jemen væri hætt, þá hófust loftárásir að nýju á hafnarborgina Aden. Fréttaskýrendur telja þetta þýða að dregið verði úr árásum, þótt ekki verði þeim hætt. Loftárásirnar hófust fyrir mánuði og hafa að sögn Rauða krossins valdið gríðarlegu tjóni og mannlegum harmleik í landinu. „Það hliðartjón sem orðið hefur á lífi og eignum almennra borgara af völdum bæði loftárásanna og bardaga á jörðu niðri er algjörlega skelfilegt, sérstaklega í borgunum Sana, Aden, Taíz og Marib,“ hefur Reuters-fréttastofan eftir Robert Mardini, yfirmanni Alþjóðanefndar Rauða krossins í Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum. Hann segir jafnframt að loftárásirnar hafi ekki skilað neinum þeim árangri, sem að var stefnt. „Pólitísku vandamálin sem eru rótin að mörgum þeim átökum sem nú standa yfir í Jemen hafa ekki verið leyst. Ekki er neitt sjáanlegt sem bendir til þess að á næstu dögum muni draga úr átökum til frambúðar,“ segir hann. „Þetta á eftir að fara úr því að vera slæmt yfir í að versna enn frekar næstum því alls staðar í landinu.“
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira