Ákvað að flytja eigið ljóð Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 31. mars 2015 13:00 Þóra Ragnarsdóttir, kennari í Salaskóla og kynnir keppninnar, Bjartur Jörfi Ingvason úr Snælandsskóla sem varð í þriðja sæti, Aníta Daðadóttir í Salaskóla, sigurvegari, og Björn Breki Steingrímsson í Salaskóla sem varð í öðru sæti. „
Þetta er í fyrsta skipti sem ég vinn keppni sem tengist lestri en þegar ég var sjö ára sigraði ég í söngvakeppni á fjölskyldudegi í Hrísey. Ég söng Stóð ég úti í tunglsljósi,“ segir Aníta Daðadóttir, sem bar sigur úr býtum í upplestrarkeppninni í Kópavogi. Hún er nemandi í Salaskóla og í sjöunda bekk eins og aðrir þátttakendur í keppninni. Spurð hvort hún hafi æft lesturinn mikið, svarar Aníta: „Ekkert mjög en ég var svona búin að fara vel yfir efnið. Við lásum kafla úr sögunni Öðruvísi fjölskylda eftir Guðrúnu Helgadóttur og ljóð eftir Anton Helga Jónsson. Svo flutti ég ljóð eftir sjálfa mig sem ég samdi bara daginn áður.“ Var skylda að yrkja ljóð? „Nei, við áttum að flytja ljóð að eigin vali og ég ákvað að semja mitt eigið.“ Ertu vön að koma fram? „Já, ég hef oft komið fram á tónleikum með mömmu minni sem heitir Regína Ósk og er söngkona.“ Hvað fékkstu í verðlaun? „Ég fékk gjafabréf í Íslandsbanka upp á 20 þúsund og svo fékk ég ljóðabók eftir Anton Helga Jónsson, blóm og viðurkenningarskjal. Ljóðið hennar Anítu Götubörn eiga engan að. Ganga um göturnar, leita að næturstað. Þau eiga ekki neitt, mér þykir það leitt. Föst í vítahring. Fátækt allt í kring. Ekkert frelsi, ekkert líf. Götubörn eiga engan að.
Mest lesið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ Tónlist Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Fleiri fréttir Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Sjá meira