Augu skemmtilegur efniviður Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 26. mars 2015 09:00 Myriam Marti tekur ljósmyndir af augum sem hún segir ótrúlega ólík. Mynd/Myriam
Myriam Marti Guðmundsdóttir hefur undanfarið tekið ljósmyndir af augum fólks sem það getur svo keypt af henni og skreytt heimili sitt með. Hún hefur meðal annars ljósmyndað augu heillar fjölskyldu. „Ég sá mynd heima hjá vini mínum sem var mynd af hring með fullt af litum, mynstri og svörtum punkti í miðjunni. Ég hélt að það væri mynd af auga en svo var ekki,“ segir Myriam þegar hún er spurð að því hvernig hugmyndin að verkefninu hafi kviknað. Í kjölfarið tók hún mynd af auga systur sinnar en hún segir myndirnar koma einstaklega vel út uppi á vegg. Það tók talsverðan tíma fyrir Myriam að finna út hvernig best væri að taka myndirnar og þurfti hún að prufa sig áfram með mismunandi linsur og lýsingu. Hún segir augun skemmtilegan efnivið, þau séu ótrúlega ólík og margt skemmtilegt hægt að sjá í þeim. „Ég þarf ekki að photoshopa myndirnar mikið til að gera þær meira spennandi, lagfæri til dæmis glampa og svoleiðis en ég breyti engum litum eða neitt þannig, þess gerist ekki þörf,“ segir hún en hún hefur ekki enn tekið myndir af sínum eigin augum, en að sjálfsögðu prýða ljósmyndir af augum veggi heimilis hennar. „Ég er ekki búin að gera það, ég er spenntari fyrir öðrum. Ég er meira að segja með auga systur minnar og mömmu minnar uppi á vegg hjá mér, þær fylgjast alltaf með mér,“ segir hún hlæjandi þegar hún er spurð að því hvort hún sé búin að taka myndir af sínu eigin auga.Augun þín Hér er ein af ljósmyndum Myriam.mynd/Myriam„Kona sem ég þekki les í augu og hún er búin að vera að lesa úr augunum og segja mér frá persónuleika hvers og eins. Það er rosalega skemmtilegt líka,“ segir Myriam en hún hefur verið að taka myndirnar erlendis en kemur til Íslands yfir páskana og hyggst halda verkefninu áfram hér en hefur ekki enn ákveðið hvað hún mun gera við ljósmyndirnar. „Það er ekkert sem ég er búin að ákveða, en við sjáum til. Það hlýtur eitthvað skemmtilegt að koma út úr þessu,“ segir hún glöð í bragði. Hægt er að hafa samband við myriammarti@myriammarti.com og fleiri verk má skoða á vefsíðu hennar.
Mest lesið Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Lífið Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Lífið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið Krefja Apple um íslensku Menning „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Lífið Ellen verður að Dóru á ný Lífið Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Menning Úlfarnir rifu næstum þakið af Austurbæ Tónlist Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás Lífið Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Sjá meira