Hjartað slær í Básum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 23. mars 2015 13:00 Skúli staðnæmist við brún Rauðufossa á göngu sinni frá Landmannahelli í Dalakofa.
Allt er fertugum fært, segir máltækið, og það má með sanni segja um ferðafélagið Útivist. Það efnir til ferða á hverjum sunnudegi árið um kring og margar ferðir taka fleiri daga. Framkvæmdastjórinn Skúli H. Skúlason segir það líka stöndugt og með traustan fjárhag. En skyldi vera mikil endurnýjun í því? „Já, okkur helst vel á félögum og við erum alltaf að sjá ný andlit. Fólk þarf ekki að vera félagar til að slást í hópinn í ferðir með okkur en það er samt hagstæðara fyrir það,“ svarar hann. Fyrsta ganga Útivistar var á Keili 6. apríl 1975 og allar götur síðan hefur verið farin afmælisganga á Keili að sögn Skúla sem reyndar sat heima í gær þegar slík ferð var farin, upptekinn við að lýsa starfsemi Útivistar í fjölmiðlum. Útivist var stofnað út úr Ferðafélagi Íslands. Félagar voru 54 í upphafi en eru í dag um 1.500, að sögn Skúla. Fljótlega eftir stofnun segir hann áhuga hafa vaknað á að reisa skála á góðum stað og athuganir hafa endað með því að félagið fékk að byggja í Básum. „Í hugum margra slær hjarta félagsins í Básum,“ segir hann og heldur áfram: „Þegar hafist var handa við skálann árið 1980 átti félagið enga peninga en skuldaði um 800 þúsund. Talið var að skálinn kostaði annað eins. Samt tókst að koma honum upp því félagsmenn styrktu bygginguna með fjárframlögum eða efni, sumir veðsettu húsin sín fyrir lánum og svo var farið allar helgar austur í Bása til að smíða.“ Síðan hefur félaginu vaxið fiskur um hrygg, það hefur byggt annan skála í Básum og smáhýsi við tjaldstæðin auk sex annarra skála, á Fimmvörðuhálsi, við Sveinstind, í Skælingum, við Álftavötn, Strútsskála og Dalakofann. Aðalstarfsemin er samt ferðalög og einnig lýsir Skúli dagskrá sérstakra hópa. „Einn hópurinn heitir Fjallarefir, hann er hugsaður fyrir fólk sem er að byrja í útivist, hefur kannski lengi langað en aldrei stigið skrefið. Þar er samþættuð göngudagskrá, fræðsla og þjálfun, farið í gegnum allt sem skiptir máli í útvistinni, klæðnað, næringu og fleira. Það hefur gefist mjög vel og við erum komin með framhaldsprógramm fyrir þá lengra komnu. Annar hópur heitir Everest og hann er fyrir fólk sem er í mjög góðu formi, gengur greitt, tekur á því og klífur tinda. Svona er reynt að höfða til allra.“
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira