Viðurkenningin mikilvægust Erla Björg Gunnarsdóttir og Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 21. mars 2015 11:00 Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Samfélagsverðlaunin við hátíðlega athöfn. vísir/ernir
Hetjur hvaðanæva af úr samfélaginu komu saman á afhendingu Samfélagsverðlaunum Fréttablaðsins. Verðlaunahafarnir áttu það allir sameiginlegt að vera djúpt snortnir yfir því að tekið væri eftir verkum þeirra og ævistarfi. Verðlaunað var í fimm flokkum. Stígamótakonur sögðust finna fyrir miklum velvilja og sögðu viðurkenninguna blása þeim eldmóði í brjóst.vísir/ernirGefur aukinn kraft Stígamót fengu Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins fyrir baráttu sína gegn kynferðisofbeldi. Samtökin fengu tólf hundruð þúsund í verðlaun. „Fyrir utan að það kemur sér alltaf vel að fá svolítinn aur þá skiptir viðurkenningin ekki síður máli. Stígamót eru búin að vera í baráttunni í 25 ár en því miður er enn langt í land,“ segir Þórunn Þórarinsdóttir starfskona Stígamóta. „Ef við mættum ráða væri búið að loka Stígamótum og kynferðisofbeldi væri ekki lengur til. Það er markmiðið þannig að það er mikil vinna fram undan. En við finnum fyrir miklum velvilja, það skiptir svo miklu máli.“ Þórunn segir þennan velvilja ekki hafa alltaf verið fyrir hendi. „Frumkvöðlar Stígamóta mættu heilmiklum mótbyr í byrjun, í kringum 1990, enda var verið að fjalla um óþægileg mál. Þetta eru, hafa verið og eru enn oft best varðveittu leyndarmálin í samfélaginu. Þetta eru málefni sem eru ekki endilega þægileg, hvorki fyrir einstaklinga né samfélagið. Þannig að auðvitað mætum við ákveðnum hindrunum. Svona viðurkenning gefur manni fullan kraft til að yfirstíga slíkar hindranir.“Hafdís Árnadóttir opnaði dyrnar á Kramhúsinu fyrir þrjátíu árum og hefur sagt já við hugmyndum síðan þá.Þrjár kynslóðir í Kramhúsinu Hafdís Árnadóttir fékk heiðursverðlaunin fyrir þrjátíu ára starf sitt í Kramhúsinu. Hafdísi Árnadóttur var þakkað fyrir að hreyfa við þjóðinni með starfi sínu í Kramhúsinu og hlaut heiðursverðlaun fyrir fjölmenningarlegt og skapandi starf. Hún tileinkaði starfsfólki sínu verðlaunin. „Ég er alveg orðlaus. Alveg óskaplega auðmjúk, stolt og þakklát. En Kramhúsið væri ekki til ef ég hefði ekki svona gott fólk í kringum mig. Ég opnaði dyrnar að húsinu og starfsfólkið fær nýjar hugmyndir á hverjum degi. Ég er opin fyrir þessum hugmyndum enda er nei stopp, og já er áfram. Ég er meira í já-inu.“ Kramhúsið var opnað fyrir þrjátíu árum og í dag eru þrjár kynslóðir í húsinu. „Fólk sem byrjaði fyrir þrjátíu árum er enn í tímum hjá mér. Svo eru börn þeirra hér og barnabörn,“ segir Hafdís og bætir við að Kramhúsið sé vissulega á margan hátt öðruvísi en aðrar þjálfunarstöðvar sem eru meira árangurstengdar. „Við erum með hús þar sem þú kemur til að vera, ekki verða. Það er engin áhersla að verða eitthvað sérstakt. Við búum fyrst og fremst til skapandi skilyrði, þar sem fólk fær að vera.“Kári og Halldór fengu verðlaunagripi sem unnir voru í Ásgarði og auk þess sjónvarpsskjá frá Heimilistækjum, eins og aðrir verðlaunahafar.vísir/ernirUpplýsing er besta leiðin Kári og Halldór Auðar- og Svanssynir hlutu samfélagsverðlaun í flokknum Til atlögu gegn fordómum. „Langbesta leiðin til að eyða fordómum er að upplýsa fólk um hluti sem það hefur fordóma fyrir,“ segir Halldór Auðar- og Svansson. Kári bróðir hans tekur í sama streng. „Það liggur í orðinu fordómar að þar er fólk að dæma eitthvað fyrirfram sem það þekkir ekki.“ Þetta mæla þeir bræður með bros á vör og hamingjusamir eftir að hafa tekið við samfélagsverðlaunum í flokknum Til atlögu gegn fordómum. Þau hlutu þeir fyrir að tjá sig á síðasta ári opinskátt um geðsjúkdóma sem þeir höfðu gengið í gegnum. Báðir hafa bræðurnir orðið varir við að umræðan sem þeir komu af stað hafi vakið jákvæð viðbrögð víða í samfélaginu. Þeir ljúka líka lofsorði hvor á annan fyrir stuðninginn í veikindunum, meðal annars með daglegum heimsóknum á geðdeildina hvor til annars. „Orð Grettis: Ber er hver að baki nema sér bróður eigi, eiga vel við í okkar tilfelli,“ segir Kári.Það var áhugamál hjá mér alla tíð að koma krökkunum út á dansgólfið og margir gamlir nemendur mínir minnast þess,“ segir Jón Freyr.vísir/ernirFór ótroðnar slóðir Jón Freyr Þórarinsson, fyrrverandi skólastjóri, hlaut verðlaun í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar, meðal annars fyrir danskennslu í frítíma sínum. „Ég er þakklátur fyrir þessa viðurkenningu. Mér finnst hún hugguleg og skil ekki hvernig fólki datt í hug að fara að leita mig uppi. En ég lít á mig sem fulltrúa margra annarra sem vinna að einhverju svipuðu og ég hef verið að gera gegnum árin,“ segir Jón Freyr Þórarinsson, handhafi samfélagsverðlauna í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar. Hann starfaði í 45 ár í Laugarnesskóla, fyrst sem kennari, svo yfirkennari og síðast skólastjóri. Jón Freyr kenndi nemendum dans í sjálfboðavinnu, ásamt konu sinni Matthildi Guðnýju Guðmundsdóttur, þar til hann varð skólastjóri, þá fékk hann ýmsa danskennara í skólann. „Það var áhugamál hjá mér alla tíð að koma krökkunum út á dansgólfið og margir gamlir nemendur mínir minnast þess,“ segir hann. Það stemmir við tilnefningar sem blaðinu bárust þar sem Jón er lofaður fyrir að fara ótroðnar slóðir við kennslu. Þar segir meðal annars: „Hann kenndi okkur svo margt um lífið og um það að vera góður þjóðfélagsþegn. Við sem vorum í hans umsjá búum enn að hans umhyggju.“Starfsfólk Grensásdeildar fjölmennti á afhendingu verðlaunanna.Gaman að fá jákvæða umræðuStarfsfólk Grensásdeildar Landspítalans var valið hvunndagshetjur ársins fyrir óeigingjarnt starf sitt við að koma fólki aftur út í lífið eftir slys og veikindi. Þessi verðlaun hafa mikla þýðingu fyrir okkur. Þetta hvetur starfsfólkið áfram, það fær viðurkenningu fyrir það sem það er að gera og leggja sig fram við alla daga, eins vel og það getur,“ segir Sigríður Guðmundsdóttir hjúkrunardeildarstjóri. „Þetta er mikil hvatning fyrir allt okkar starfsfólk. Umræðan um Landspítalann hefur oft verið neikvæð en þetta hjálpar okkur að halda áfram og gera betur.“ Sigrún Garðarsdóttir iðjuþjálfi bætir við að verðlaunin geri starfsfólkið sýnilegra. „Þrátt fyrir mikinn hraða, álag og ekki sérlega gott húsnæði þá höldum við bara áfram okkar starfi. Þetta er púst.“ Guðbjörg Lúðvíksdóttir læknir segir þetta líka mikilvægt fyrir sjálfa sjúklingana. „Það er gott að þeir fái að finna að það skipti fólk í samfélaginu miklu máli að þeir komist aftur út í lífið og að það sé talið mikilvægt að fólk fái góða endurhæfingu.“
Mest lesið „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Lífið Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Lífið Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lífið Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Lífið Skúli hannaði hof fyrir Grímu Lífið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Lífið Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið Lífið Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Lífið Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Lífið Lil Nas X laus gegn tryggingu Lífið Fleiri fréttir „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Fagurkeri selur miðbæjarperlu „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Skúli hannaði hof fyrir Grímu Fann nýjan tilgang í kjölfar lömunar í kraftlyftingum Eyðir afmælisdegi dótturinnar í fasteignadeilur Eini dagurinn sem hægt er að fara upp í Gróttuvita Krakkatía vikunnar: Menning, bangsar og líffæri Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Miklar tilfinningar og mikil stemning í Reykjavíkurmaraþoninu Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Sjá meira