Samþykktu fyrir 23. mars Elsa Lára Arnardóttir skrifar 18. mars 2015 07:00 69 þúsund umsóknir bárust frá 105 þúsund einstaklingum um skuldaleiðréttingu á verðtryggðum húsnæðislánum. Frestur til að samþykkja leiðréttinguna rennur út þann 23. mars nk. Þessi frestur á við um þær umsóknir þar sem niðurstöður voru birtar þann 23. desember sl. Enn á eftir að vinna úr 3.900 umsóknum og unnið er hörðum höndum við að klára vinnslu þeirra. Ýmsar ástæður liggja þar að baki. Í nokkrum tilvikum vantar frekari gögn sem kallað hefur verið eftir frá umsækjendum og í öðrum tilvikum er m.a. um að ræða dánarbú og breytingar á fjölskylduhögum.68 milljörðum þegar ráðstafað 80 milljörðum var ráðstafað í beina niðurfellingu skuldaleiðréttingarinnar. Nú þegar hefur 68 milljörðum verið ráðstafað inn á verðtryggðar húsnæðisskuldir landsmanna og búið er að ganga frá afgreiðslu þeirra mála inni í bankakerfinu. Í þeim tilvikum hafa áhrif leiðréttingarinnar komið fram, bæði hvað varðar höfuðstól lánanna og í afborgunum. Gaman hefur verið að fá fréttir frá fólki sem er ánægt með leiðréttinguna. Segja hana hafa góð áhrif á heimilisbókhaldið. Segjast geta farið 2-3 sinnum í matvöruverslunina fyrir þá upphæð sem lánið minnkar um. Alla munar um það. Auðvitað er það mismunandi hvað lánin lækka um, fer allt eftir skuldahlutfalli hvers og eins. Þak aðgerðarinnar var fjórar milljónir. Þeir sem eiga eftir að samþykkja leiðréttinguna, eiga að hafa fengið póst eða eiga von á pósti frá ríkisskattstjóra, sem á að minna á samþykkisfrestinn. Samkvæmt fréttum frá ríkisskattstjóra hafa margir tekið vel við sér þegar þeir hafa fengið áminningarpósta þessa efnis.Heimilin áfram í fyrsta sæti Nú hafa rúmlega 32 þúsund umsóknir borist um ráðstöfun séreignasparnaðar. Hægt er að velja um tvær leiðir. Það er að borga séreignasparnað inn á húsnæðislán eða borga inn á sérstakan húsnæðissparnað. Enn er hægt að sækja um þessa aðgerð og gildir hún til ársins 2017. Auk þessa styttist verulega í frumvörp er koma á móts við þá sem eru á leigumarkaði. Þar er m.a. tekið á uppbyggingu húsnæðissamvinnufélaga, unnið að lækkun leiguverðs, auknu framboði íbúða og meiri stuðningi við þá sem búa í leiguhúsnæði, í gegnum húsnæðisbætur. Samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar eru frumvörp er varða afnám verðtryggingar af neytendalánum, væntanleg í þingið í lok mars. Þau miða að því að fyrstu skref í afnámi verðtryggingarinnar af neytendalánum, fari fram í byrjun ársins 2016. Það er óhætt að halda því fram að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hafi sett heimilin í fyrsta sæti og haldi þeirri forgangsröðun áfram. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Verri framkoma en hjá Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ísrael – brostnir draumar og lygar Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Skoðun GPT‑5 kemur í ágúst – áskoranir og tækifæri fyrir Ísland Sigvaldi Einarsson Skoðun Við tölum um vöxt — en gleymum því sem vex Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Ætla þau að halda áfram að grafa sína eigin gröf? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þú ert búin að eyðileggja líf mitt!!! Sandra Ósk Jóhannsdóttir Skoðun Landið talar Davíð Arnar Oddgeirsson Skoðun Þegar hið smáa verður risastórt Sigurjón Þórðarson Skoðun Halldór 26.07.2025 Halldór Skoðun Skoðun Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun GPT‑5 kemur í ágúst – áskoranir og tækifæri fyrir Ísland Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Við tölum um vöxt — en gleymum því sem vex Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Verri framkoma en hjá Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Landið talar Davíð Arnar Oddgeirsson skrifar Skoðun Ætla þau að halda áfram að grafa sína eigin gröf? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Ísrael – brostnir draumar og lygar Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Ein af hverjum fjórum Silja Höllu Egilsdóttir skrifar Skoðun Vertu drusla! Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Þegar hið smáa verður risastórt Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Þú ert búin að eyðileggja líf mitt!!! Sandra Ósk Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Tekur sér stöðu með Evrópusambandinu Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Feluleikur ríkisstjórnarinnar? Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun Ég heiti Elísa og ég er Drusla Elísa Rún Svansdóttir skrifar Skoðun Grindavík má enn bíða Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Aðventukerti og aðgangshindranir Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Lífið í tjaldi á Gaza Viðar Hreinsson,Israa Saed skrifar Skoðun Gaza og sjálfbærni mennskunnar Elva Rakel Jónsdóttir skrifar Skoðun Börnin og hungursneyðin í Gaza Sverrir Ólafsson skrifar Skoðun Kynbundið ofbeldi Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Aðdragandi aðildar þarf umboð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson skrifar Skoðun Þétting byggðar er ekki vandamálið Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Þrengt að þjóðarleikvanginum Þorvaldur Örlygsson skrifar Skoðun Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir skrifar Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson skrifar Skoðun Alltof mörg sveitarfélög á Íslandi! Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Lýðheilsan að veði? Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Evrópusambandsaðild - valdefling íslensks almennings Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Sjá meira
69 þúsund umsóknir bárust frá 105 þúsund einstaklingum um skuldaleiðréttingu á verðtryggðum húsnæðislánum. Frestur til að samþykkja leiðréttinguna rennur út þann 23. mars nk. Þessi frestur á við um þær umsóknir þar sem niðurstöður voru birtar þann 23. desember sl. Enn á eftir að vinna úr 3.900 umsóknum og unnið er hörðum höndum við að klára vinnslu þeirra. Ýmsar ástæður liggja þar að baki. Í nokkrum tilvikum vantar frekari gögn sem kallað hefur verið eftir frá umsækjendum og í öðrum tilvikum er m.a. um að ræða dánarbú og breytingar á fjölskylduhögum.68 milljörðum þegar ráðstafað 80 milljörðum var ráðstafað í beina niðurfellingu skuldaleiðréttingarinnar. Nú þegar hefur 68 milljörðum verið ráðstafað inn á verðtryggðar húsnæðisskuldir landsmanna og búið er að ganga frá afgreiðslu þeirra mála inni í bankakerfinu. Í þeim tilvikum hafa áhrif leiðréttingarinnar komið fram, bæði hvað varðar höfuðstól lánanna og í afborgunum. Gaman hefur verið að fá fréttir frá fólki sem er ánægt með leiðréttinguna. Segja hana hafa góð áhrif á heimilisbókhaldið. Segjast geta farið 2-3 sinnum í matvöruverslunina fyrir þá upphæð sem lánið minnkar um. Alla munar um það. Auðvitað er það mismunandi hvað lánin lækka um, fer allt eftir skuldahlutfalli hvers og eins. Þak aðgerðarinnar var fjórar milljónir. Þeir sem eiga eftir að samþykkja leiðréttinguna, eiga að hafa fengið póst eða eiga von á pósti frá ríkisskattstjóra, sem á að minna á samþykkisfrestinn. Samkvæmt fréttum frá ríkisskattstjóra hafa margir tekið vel við sér þegar þeir hafa fengið áminningarpósta þessa efnis.Heimilin áfram í fyrsta sæti Nú hafa rúmlega 32 þúsund umsóknir borist um ráðstöfun séreignasparnaðar. Hægt er að velja um tvær leiðir. Það er að borga séreignasparnað inn á húsnæðislán eða borga inn á sérstakan húsnæðissparnað. Enn er hægt að sækja um þessa aðgerð og gildir hún til ársins 2017. Auk þessa styttist verulega í frumvörp er koma á móts við þá sem eru á leigumarkaði. Þar er m.a. tekið á uppbyggingu húsnæðissamvinnufélaga, unnið að lækkun leiguverðs, auknu framboði íbúða og meiri stuðningi við þá sem búa í leiguhúsnæði, í gegnum húsnæðisbætur. Samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar eru frumvörp er varða afnám verðtryggingar af neytendalánum, væntanleg í þingið í lok mars. Þau miða að því að fyrstu skref í afnámi verðtryggingarinnar af neytendalánum, fari fram í byrjun ársins 2016. Það er óhætt að halda því fram að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hafi sett heimilin í fyrsta sæti og haldi þeirri forgangsröðun áfram.
Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun
Skoðun Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar
Skoðun Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson skrifar
Skoðun Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir skrifar
Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun