Aðstæður á Gaza svæðinu í brennidepli í nýjasta myndbandi Blaz Roca Guðrún Ansnes skrifar 7. mars 2015 11:30 Áhugafólk um málefni palestínu Erpur Eyvindarson og Bryndís Silja Pálmadóttir leiddu saman hesta sína. Vísir/Stefán „
Mér þykir mjög gott að geta sent frá mér þetta efni, en myndavélin er eitt öflugasta vopnið sem hægt er að beita í þessum aðstæðum,“ segir Bryndís Silja Pálmadóttir, sem tók upp myndefni sem notað er í nýju myndbandi við lag eftir rapparann Erp Eyvindarson, sem er einnig þekktur sem Blaz Roca. Bryndís Silja var stödd á Gaza-svæðinu fyrr á árinu á vegum samtakanna Ísland/Palestína. „Þetta er svo ljónhart efni, og þegar við fréttum af Bryndísi Silju í framlínunni í Palestínu kom ekkert annað til greina en að fá að nota myndefni frá Bryndísi í myndbandið,“ segir Erpur. Lagið ber titilinn Warsaw Gettó Gaza og er ádeila á stöðu mála í Palestínu í dag og setur Erpur það í sögulegt samhengi við hryllinginn sem átti sér stað í seinni heimsstyrjöldinni í boði Nasista.Drykk, dick eða á standið í heiminum Hann er ángæður með hvernig lagið kom út en í því nýtur hann aðstoðar strákanna í Dusk og rapparans Class B. „Ég er listamaður, ég verð að tjá mig. Að vekja upp tilfinningar er það sem listamenn vilja gera, það á við hvort sem ég rappa um dick og drykk eða ástandið í heiminum,“ bætir hann við.Umhugað um stöðuna Erpi og Bryndísi Silju er báðum mjög umhugað um stöðu Palestínumanna. „Þessi örvænting sem fólk stendur frammi fyrir og gerir allt sem það þarf til að verja sitt eins og gyðingar gerðu í Varsjá á sínum tíma, er hvatinn. Að standa í lappirnar og berjast með flugeldum á móti hitamiðuðum flugskeytum er þess virði að tala um,“ útskýrir Erpur. Bryndís Silja segir upplifunina af því að hafa séð ástandið með eigin augum hafa verið sterka. Hún tekur dæmi um sérstök hlið þar sem börn allt niður í fimm ára fara daglega í gegnum á leið sinni til skóla. „Þar eru ísraelskir verðir og mikið um ofbeldi á börnum og barnahandtökur. Við stóðum oft bara þarna við, til þess að sporna við að ofbeldið ætti sér stað, slíkur er máttur myndavélarinnar.“ Myndbandið frumsýnt á mánudag „Formsins vegna gerist allt mjög hratt í svona myndbandi við lag sem telur kannski tvær, þrjár mínútur, svo við ætlum að sýna efnið hennar almennilega á mánudagskvöldið á KEX“, segir Erpur. Auk frumsýningar myndbandsins verður annað myndefni frá Palestínu og Ísrael sýnt. „Ég mun sýna valið efni og sýna umhverfið og öfgakenndu aðstæðurnar sem ég bjó við. Þessu verður svo fylgt eftir þar sem ég mun svara spurningum,“ bætir Bryndís Silja við. Kvöldið hefst klukkan átta næskomandi mánudag og er aðgangur ókeypis.
Tengdar fréttir Frumsýnir tvö ný myndbönd Myndefnið við annað tónlistarmyndbandanna er tíu ára gamalt. 29. janúar 2015 09:30 Erpur hitar upp fyrir Pokahontaz Sveitin er geysilega vinsæl og er með tæplega tvö hundruð þúsund læk á fésbókarsíðu sinni og nokkrar milljónir áhorfa á myndböndin sín á YouTube. 27. janúar 2015 10:00 Blaz bræðir snjó af götum borgarinnar "Dýrasta myndband sem ég hef gert“ 6. desember 2014 10:00 Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira
Frumsýnir tvö ný myndbönd Myndefnið við annað tónlistarmyndbandanna er tíu ára gamalt. 29. janúar 2015 09:30
Erpur hitar upp fyrir Pokahontaz Sveitin er geysilega vinsæl og er með tæplega tvö hundruð þúsund læk á fésbókarsíðu sinni og nokkrar milljónir áhorfa á myndböndin sín á YouTube. 27. janúar 2015 10:00