Greiddu hátt á annan milljarð fyrir umbúðir Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. febrúar 2015 09:00 Endurvinnslan Það er jafnan mikið að gera á móttökustöð Endurvinnslunnar á Dalvegi. fréttablaðið/stefán
Áætlað er að neytendur hafi greitt á bilinu 1.870-1.880 milljónir króna í endurvinnslugjald fyrir einnota drykkjarvöruumbúðir á árinu 2014. Af því endurgreiddi endurvinnslan um 1.636 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Helga Lárussyni, framkvæmdastjóra Endurvinnslunnar. Samkvæmt 1. grein laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur skal leggja skilagjald á drykkjarvörur í einnota umbúðum úr stáli, áli, gleri og plastefni. Samkvæmt 3. grein sömu laga skal endurgreiða neytendum skilagjald við móttöku á notuðum skilagjaldsskyldum umbúðum. „Við höfum verið með eitt allra besta skilahlutfall í heimi miðað við það sem kemur í gegnum skilakerfi,“ segir Helgi. Helgi segir að endurgreiðslur hafi hækkað örlítið á árinu sem leið því skilagjaldið fór úr fjórtán krónum í fimmtán. „Þannig að það jókst sem því nemur auk þess sem Íslendingar virðast vera farnir að drekka aðeins meira eftir hrun. Það hefur því verið aukning í sölu þessara umbúða og líka er hluti af aukningunni kominn þannig til að 1. janúar 2014 var Fríhöfninni skylt að greiða skilagjald af því sem kemur í gegnum móttökufríhöfnina,“ segir Helgi. Helgi segir að Endurvinnslan selji ál og plast til útlanda en glerið sé erfiðara viðfangsefni. „Það fæst ekkert fyrir gler og tiltölulega einfalt að búa til gler,“ segir hann. Það sé af sem áður var þegar glerið var fjölnota og tekið inn og þvegið. „Þá var mannskapur sem tók tyggjóklessur upp úr glerinu og þetta var sett í lút. Það eru nánast öll lönd hætt þessu. Mjög fá lönd eru með margnota gler,“ segir hann. Glerið er því notað í landfyllingu. Í fyrra seldi Endurvinnslan til útlanda 1.590 tonn af endurvinnanlegu plasti og 810 tonn af áli. Þá segir Helgi að viðskiptavinir hafi komið með 66 tonn af plastpokum á móttökustöðvar á Dalvegi og í Knarrarvogi sem sendir voru í endurvinnslu.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira