Býður gestum að taka þátt Gunnar Leó Pálsson skrifar 14. febrúar 2015 09:00 Fjöldi tónlistaratriða verður á dagskránni á opna deginum í tónskóla eddu borg í dag. Fjölmargir skólar eru með opið hús og viðburði af því tilefni. vísir/gva „
Þetta er svo skemmtilegt uppbrot frá því sem við erum að gera frá degi til dags,“ segir Edda Borg Ólafsdóttir skólastjóri í Tónskóla Eddu Borg. Í dag er Dagur tónlistarskólanna 2015 og eru tónlistarskólar landsins með margvíslega dagskrá af því tilefni og margir skólar með opið hús. „Við bjóðum ykkur upp á fjölbreytta tónlistardagskrá, kaffi, djús og heitar vöfflur með rjóma. Við bjóðum alla velkomna, þetta er ekki bara fyrir nemendur, foreldra og aðstandendur þeirra, heldur eru allir velkomnir sem vilja kynna sér starf tónlistarskólans og hlusta á skemmtilega tónlist,“ segir Edda Borg um daginn í sínum skóla. Dagur tónlistarskólanna er í febrúarmánuði ár hvert. Þá efna tónlistarskólarnir til hátíðar hver á sínum stað. Meðal viðburða má nefna opið hús, tónleika, hljóðfærakynningar og ýmiss konar námskeið. Þá heimsækja nemendur einnig aðra skóla, vinnustaði og heilbrigðisstofnanir í þeim tilgangi að flytja tónlist. „Við ætlum að enda opna húsið á því að leyfa gestum okkar að vera þátttakendur í tónlistarflutningnum. Við verðum með litla hljómsveit og gestum okkar gefst tækifæri til þess að spila með henni, jafnvel þó þeir spili ekki á neitt hljóðfæri. Við gerðum þetta í fyrra og það var mjög skemmtilegt og fólk hafði gaman af þessu,“ segir Edda Borg. Á Íslandi starfa um 90 tónlistarskólar og hjá þeim starfa um 900 kennarar og nemendur eru um 15.000 talsins. Fyrstu lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla voru sett 1963 og er nú kennt eftir samræmdum námskrám sem menntamálaráðuneytið gefur út. Í skólunum eiga nemendur kost á fjölbreyttu tónlistarnámi. Skólarnir gegna mikilvægu hlutverki í menningarlífi hvers byggðarlags. Húsið verður opnað klukkan 13.00 í Tónskóla Eddu Borg en hægt er að grennslast fyrir um frekari opnunartíma og viðburði hjá heimasíðum tónlistarskólanna.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira