TREC er ný hestaíþrótt á Íslandi 10. janúar 2015 12:00 Í TREC þarf að leysa ýmsar þrautir. "
TREC sameinar í raun nokkrar greinar sem keppt hefur verið í hér á landi. Fyrst er það Smali þar sem keppt er í þrautabraut á tíma, önnur er þrautabraut þar sem lögð er áhersla á nákvæmnisvinnu og sú þriðja er víðavangshlaup þar sem farið er yfir læki og hindranir úti í náttúrunni,“ segir Andrea formaður TREC-nefndar Landssambands hestamannasem sjálf keppti í víðvangshlaupi á sínum yngri árum en keppni í slíku lagðist af fyrir allmörgum árum. „TREC er skammstöfun á Techniques de Randonnée Équestre de Compétition, og var upphaflega próf fyrir leiðsögumenn á hestum,“ útskýrir Andrea en TREC er sérstaklega vinsæl keppnisgrein í Frakklandi.Andrea Þorvaldsdóttir, formaður TREC-nefndar Landssambands hestamanna.„Íslenskir hestar hafa tekið þátt í keppni í Frakklandi og unnið til verðlauna,“ segir Andrea og telur íslenska hestinn henta sérstaklega vel í slíka keppni. „Hann er smár og lipur en líka mjög hugrakkur. Keppnisbrautin líkist því náttúrulega umhverfi sem hesturinn elst upp við hér á landi.“ TREC-keppnin samanstendur í meginatriðum af tveimur þáttum. Í fyrsta lagi allt að 40 kílómetra víðavangshlaupi, sem er ratleikur og þolreið þar sem reynir á ratvísi og útsjónarsemi knapans. Í öðru lagi þrautakeppni þar sem hver keppandi leysir þrautir svo sem að hleypa yfir hindrun, teyma hest fram af bakka, ríða yfir vatnshindrun eða læk, í gegnum hlið og teyma upp á kerru. Keppnisgrein fyrir fleiri Hingað til hefur keppni á íslenskum hestum snúist mest um hefðbundnar hringvalla- og kynbótagreinar. „Fyrir slíkt þarft þú bæði að vera mjög góður reiðmaður og eiga góða hesta. Það er því aðeins brotabrot af hestamönnum sem geta stundað slíka keppni. TREC er hins vegar nýtt form af reiðmennsku og keppni sem hentar hinum almenna hestamanni, bæði ungum og gömlum, og hestum af ýmsum toga.“Maude Radelet frá Sviss keppir á íslenska hestinum Óðni í TREC. Hún hefur náð verðlaunasætum í nokkrum keppnum og varð efst á svissneska landsmótinu 2013.Mikill áhugi Andrea segir upphafið að TREC hér á landi mega rekja til þess þegar sveit íslenskra ungmenna var boðið að taka þátt í TREC-heimsmeistaramótinu sem var haldið í Frakklandi árið 2008. Í framhaldinu fengu forsvarsmenn í Landssambandi hestamanna mikinn áhuga á keppnisforminu. Tvö hestamannafélög hafa nú þegar tekið keppnisformið upp. Það eru Funi í Eyjafjarðarsveit og Sprettur í Garðabæ og Kópavogi. „Þar er verið að byggja TREC-brautir, æfingar stóðu yfir síðasta vetur og keppni var haldin í sumar,“ lýsir Andrea. Andrea er formaður TREC-nefndar LH sem vinnur að framgangi greinarinnar hér á landi. Nefndin mun í maí bjóða frönskum manni, Thierry Maurouard, til landsins til að halda námskeið. „Fyrst verður hann með tveggja daga kynningu og síðan tvö þriggja daga námskeið, annars vegar fyrir kennara og hins vegar dómara.“Ein þrautin sem þarf að leysa er að opna og loka hliði af hestbaki.Markaðstækifæri Andrea telur að TREC geti opnað ýmsa möguleika fyrir íslenska hestinn. „Þegar við erum að kynna og selja íslenska hestinn erum við ekki að gera það á réttum forsendum. Við erum alltaf að kynna íþróttahestinn og gæðinginn en það eru svo fáir sem ráða við þannig reiðmennsku,“ segir Andrea sem hefur sjálf unnið sem leiðsögumaður í hestaferðum. „Þar koma útlendingar sem falla gersamlega fyrir þessum ferðahesti og kaupa jafnvel hest í ferðinni. Það fólk er ekki að leita eftir hágengum fasmiklum töltara heldur hestinum sem bar það í sex daga um hálendið. Slíkur hestur er einmitt líka TREC-hestur, öruggur, traustur hestur sem stígur aldrei feilspor. Ég tel því að þátttaka í TREC geti opnað gríðarlega stóran markaðsglugga.“
Mest lesið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið Beckham á spítala Lífið Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Lífið F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Lífið samstarf Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Laxveiði í net á góðum sumardegi 1993 í Óseyrarnesi Menning Fleiri fréttir Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Sjá meira