Grínistar úr Mið-Íslandi á heimavelli Freyr Bjarnason skrifar 9. janúar 2015 08:30 Félagarnir í grínhópnum vinsæla verða með glænýja brandara í Leikhúskjallaranum. Mynd/Ernir Eyjólfsson „
Þetta er það skemmtilegasta sem við gerum í uppistandinu, þessar sýningar í Leikhúskjallaranum,“ segir grínistinn Björn Bragi Arnarson úr Mið-Íslandi. „Þarna erum við algjörlega á heimavelli. Við höfum gert mikið af því að skemmta hér og þar á alls konar viðburðum en í kjallaranum erum við upp á okkar allra besta.“ Grínhópurinn vinsæli snýr aftur í Leikhúskjallarann með sína fyrstu sýningu á árinu í kvöld. Síðasta sýning Mið-Íslands í kjallaranum sló í gegn og var sýnd yfir sjötíu sinnum í fyrravetur. Um fimmtán þúsund áhorfendur létu sjá sig. Aðspurður segist Björn Bragi ætla að mæta með gítarinn með sér upp á svið í þetta sinn en nokkur ár eru liðin síðan hann gerði það síðast. Hann er með brakandi ferskt grín í pokahorninu, eins og félagar hans Ari Eldjárn, Dóri DNA og Jóhann Alfreð, og hlakkar mikið til að flytja það á sviði. „Ég held að við séum að endurnýja efnið okkar mun hraðar en til dæmis kollegar okkar erlendis, sem eru á stærri markaði. Við viljum bjóða upp á nýja sýningu og efnið okkar núna er alveg glænýtt,“ segir hann um nýju brandarana. „Í nóvember vorum við með tvær tilraunasýningar til að prófa nýtt efni á áhorfendum og það var svaka stemning, sem gaf góð fyrirheit um það sem koma skal.“ Grínið er margs konar og ættu allir að fá eitthvað fyrir sinn snúð. „Umfjöllunarefnið fer eftir því hvað menn eru að fást við í lífinu. Til dæmis eiga Ari og Dóri börn en við Jói ekki. Við reynum að taka fyrir íslenska samfélagið en svo erum við mikið að gera grín að okkur sjálfum.“ Bergur Ebbi, einn af stofnendum Mið-Íslands, er í námi í Kanada en vonir standa til að hann stígi á svið á nokkrum sýningum í vetur. Í hans stað munu skiptast á að vera með strákunum þau Anna Svava Knútsdóttir, Saga Garðarsdóttir og Þorsteinn Guðmundsson. „Við söknum auðvitað Bergs Ebba mikið. Hann skilur eftir sig stórt skarð en ég held að við hefðum ekki getað fengi betri staðgengla,“ segir Björn Bragi.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira