Skírnarveislan fór fram í Staðarskála Gunnar Leó Pálsson skrifar 3. janúar 2015 10:00 Skírnavotturinn Stefan Schmitt, Fíus Franz Ásgeirsson og Björn Ingi Sverrisson, mágur Kathrinar við athöfnina. mynd/aðsend
Hjónin Kathrin Schmitt og Ásgeir Sverrisson, bændur í Brautarholti í Hrútafirði, brutu blað í sögu Staðarskála, einni ástsælustu vegasjoppu landsins, þegar þau héldu þar skírnarveislu. Sonur þeirra var skírður í Melstað í Hrútafirði og fékk nafnið Fíus Franz, en hann er jafnframt eini einstaklingurinn hér á landi sem ber það nafn. „Snorri sem rekur N1 Staðarskála og konan hans björguðu okkur alveg, við vorum með svo lítinn fyrirvara og það var alls staðar lokað,“ segir Kathrin. „Starfsfólkið á mikið hrós skilið,“ bætir hún við. „Þetta var alveg æðislegt og manni leið ekkert eins og maður væri í Staðarskála. Við vorum í svona smá hliðarsal.“ Hjónin höfðu upprunalega haft í hyggju að halda veisluna í Gauksmýri eða Hraunsnesi, sem eru hótel með veitingastað í grennd við Hrútafjörð. „Fyrirvarinn var svo stuttur og þessir staðir voru eingöngu opnir á kvöldin. Við þurftum stað þar sem boðið er upp á mat og Staðarskáli býður upp á frábæran mat,“ útskýrir Kathrin létt í lundu.Vegasjoppan N1 í Staðarskála er ein þekktasta og vinsælasta vegasjoppa landsins.vísir/GvaSvanhildur Hlöðversdóttir, stöðvarstjóri á N1 Staðarskála, segir að vissulega hafi verið óvenjulegt að halda veisluna þar. „Þetta er alls ekki algengt, ég man bara eftir þessu eina tilfelli sem að skírnarveisla hefur verið haldin hérna,“ segir Svanhildur. „Við björgum öllu sem við erum beðin um að bjarga í Staðarskála,“ bætir hún við og hlær. Skírnarvotturinn var þýskur, bróðir Kathrin, Stefan Schmitt en hann er einnig töframaður. „Hann kom sérstaklega til landsins til þess að vera skírnarvottur og svo sýndi meðal annars töfrabrögð í skírnarveislunni við mjög góðar undirtektir veislugesta,“ bætir Katrín við.
Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira