Myndlistarsýning sem tekst á við stöðu karla í nútímasamfélagi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 27. mars 2015 11:30 „Nútímamaðurinn hefur tækifæri til þess að sýna karlmennsku á öðrum sviðum og það þarf alls ekki að vera síðra“, segir Finnur Arnar myndlistarmaður sem opnar sýningu ásamt fleirum í Hafnarborg á morgun. Vísir/ernir „
Við erum hérna fjórir naglar, alvöru karlmenn, nútímamenn og allt það, að fara að sýna saman í tilefni af 100 ára kosningaafmæli kvenna á Íslandi,“ segir Finnur Arnar Arnarsson myndlistarmaður en á morgun verður opnuð í Hafnarborg sýningin MENN sem beinir sjónum að stöðu karla og lífi í upphafi 21. aldar í ljósi breyttrar stöðu kvenna. Karlmennirnir fjórir sem um getur eru þeir Curver Thoroddsen, Hlynur Hallsson, Kristinn G. Harðarson og Finnur Arnar Arnarsson. Finnur Arnar bendir á að hugmyndin að þessari nálgun sé reyndar komin frá Ólöfu K. Sigurðardóttur sýningarstjóra. „Hún var mikið búin að vera að pæla í þessu með kosningaafmælið og alla þá kvenlægu nálgun sem gefur að líta á fjölda sýninga og langaði til þess að gera eitthvað öðruvísi. Hana langaði til þess að skoða hvaða áhrif þessi þróun hefur haft á tilfinningalíf karla og hún setti sig í samband við okkur og hér erum við.“ Verkin sem hafa verið valin á sýninguna eru ákaflega fjölbreytt bæði hvað varðar miðla og nálgun. Það sem þau eiga helst sammerkt er að þar er tekist á við breytta stöðu karla innan samfélagsins sem og heimils- og fjölskyldulífs. „Það er alltaf fullt af listamönnum að fjalla um karlmennskuna. En við erum að fjalla um það að vera fjölskyldumaður í nútímasamfélagi. Maður er karlmaður og það hefur áhrif á allt sem maður hugsar og gerir. Málið er að hlutskipti karlmanna hefur breyst gríðarlega mikið og það hefur haft víðtæk áhrif á líf okkar og hugmyndir. Ég vil til dæmis meina að þetta sé alveg frábær myndlistarsýning fyrir helgarpabba. Tækifæri fyrir þá til þess að velta fyrir sér eigin hlutskipti og stöðu í samfélaginu. En það er mikilvægt að hafa í huga að þetta er enginn bömmer – langt í frá. Þessi gamla samfélagsgerð er einfaldlega gengin sér til húðar. Nútímamaðurinn hefur tækifæri til þess að sýna karlmennsku á öðrum sviðum og það þarf alls ekki að vera síðra en það sem áður var – þvert á móti. Svo geta svona skarfar eins og ég líka skroppið í sitt Skálkaskjól af og til, fengið sér einn kaldan og horft á leik í enska, tekið smá frí frá nútímanum eitt augnablik. Annars erum við fjórir sem erum að sýna allir ólíkir listamenn með ólíkan bakgrunn. Það dýpkar sýninguna og við erum því orðnir spenntir yfir að fá viðbrögðin þegar sýningin verður opnuð á morgun klukkan þrjú. Það er alveg að koma að þessu.“
Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Fleiri fréttir Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Sjá meira