Færa tilbúinn veitingastað um sex metra og fá að opna Bjarki Ármannsson skrifar 22. desember 2015 22:15 Veitingaleyfi Nam tilheyrði áður ferðaskrifstofunni Around Iceland sem hafði leyfi fyrir litlu kaffihúsi í rými staðarins með því skilyrði að það sæist ekki frá götu. Vísir/Anton
Veitingastaðurinn Nam mun opna á Laugavegi snemma á nýju ári eftir að hafa staðið í stappi við Reykjavíkurborg frá því í sumar. Staðurinn stóð klár strax í júlí en mátti ekki opna vegna skilyrðis í veitingaleyfi rýmisins sem Nam leigir. Þar segir að veitingastaður í rýminu megi ekki sjást frá götunni. „Það kom lausn í byrjun desember með borginni,“ segir Emil Helgi Lárusson, annar eigenda staðarins. „Það fól hreinlega í sér að við þurftum að taka niður staðinn sem við vorum búin að setja upp og færa hann sex metrum innar. Við þurftum að fjárfesta í það einhverjum milljónum en þetta skiptir víst öllu máli.“Sjá einnig: Eigendur Nam íhuga að fela staðinn við Laugaveg Skilyrðið er sett vegna ákvæða í Aðalskipulagi Reykjavíkurborgar 2010-2030 um að veitingarekstur megi ekki fara yfir þrjátíu prósent hlutfall af rýmum í borginni á miðborgarsvæði. Málið vakti talsverða athygli fjölmiðla í sumar en Emil og félagar voru skiljanlega svekktir yfir því að geta ekki opnað fullbúin veitingastað vegna ákvæðis í veitingaleyfinu sem þeir höfðu ekki tekið eftir.Emil Helgi Lárusson, annar eigenda Nam.Vísir„Við höfum aldrei verið neitt sérstaklega fúlir, það er ekki þannig,“ segir Emil. „Það er ekki eins og einhver hafi viljað okkur eitthvað illt. Ég held að því sé best lýst með því að segja að við séum hissa. Þessar kvaðir sem komu upp og okkur var ekki kunnugt um í byrjun, við höfum ekki heimildir um annað en að það sé enginn annar staður á Íslandi með þessar kvaðir. Mistökin okkar fólust þannig í því að gera ekki ráð fyrir kvöðum sem enginn annar hefur.“ Sjá einnig: Slást um veitingastaðakvótann á Laugavegi Þegar eigendur Nam ákváðu í byrjun mánaðar að verða við óskum borgarinnar um að færa staðinn nokkra metra („Við bara ákváðum að það væru betri möguleikar á að láta þetta ganga með staðinn opinn frekar en lokaðan,“ segir Emil,“) tók við kapphlaup við tímann um að reyna að ná að opna á aðventunni. Það getur þó reynst þrautin þyngri að fá iðnaðarmenn til starfa á þessum árstíma og þó framkvæmdir séu langt komnar, verður ekki opið á Þorláksmessu líkt og til stóð. „Það lítur út fyrir að við séum að tapa því stríði en við ætlum að opna hress á nýju ári,“ segir Emil. „Fyrst að þetta var svona erfið fæðing, hlýtur þetta að verða alveg frábær staður.“ Hann segir gesti og gangandi velkomna í heimsókn til að skoða húsnæðið á morgun og að til standi að gefa heita súpu ef það verður kalt úti.
Tengdar fréttir Eigendur Nam íhuga að fela staðinn við Laugaveg Veitingastaðurinn Nam við Laugaveg má enn ekki opna þrátt fyrir að allt sé til reiðu. 24. október 2015 19:30 Veitingastaðurinn Nam enn ekki verið opnaður Veitingastaðurinn Nam á Laugavegi hefur enn ekki verið opnaður. Eins og Markaðurinn greindi frá fyrir hálfu mánuðum hefur staðurinn verið innréttaður. Byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar kom hins vegar í veg fyrir að staðurinn yrði opnaður. Hann benti á skilyrði frá skipulagsnefnd um að veitingasalan mætti ekki sjást frá framhlið hússins. 24. september 2015 07:00 Joe & the Juice stefnir á að opna í húsnæði Asíu Veitingahúsið Asía mun loka eftir 27 ára rekstur á nýju ári við lítinn fögnuð aðdáenda staðarins. 3. desember 2015 10:53 Slást um veitingakvótann á Laugavegi Búið er að fyllta veitingareksturskvótann á miðborgarsvæðinu. Dæmi eru um að fast sé sótt að veitingamenn sem starfi á Laugaveginum gefi pláss sín eftir fyrir aðra veitingahúsaeigendur. Formaður borgarráðs segir kvóta nauðsynlega. 24. nóvember 2015 07:00 Nam á Laugavegi alveg tilbúinn en má ekki opna "Ég hef aldrei heyrt um svona skilyrði áður,“ segir eigandi staðarins sem á þó hlut í tuttugu veitingastöðum. 28. ágúst 2015 13:30 Mest lesið Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Neytendur Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Viðskipti innlent Horfur á húsnæðismarkaði versna Viðskipti innlent Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Viðskipti innlent „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Viðskipti innlent Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Verkfallið skaði orðspor Íslands Viðskipti innlent Ágúst til ADVEL Viðskipti innlent Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Sjá meira
Eigendur Nam íhuga að fela staðinn við Laugaveg Veitingastaðurinn Nam við Laugaveg má enn ekki opna þrátt fyrir að allt sé til reiðu. 24. október 2015 19:30
Veitingastaðurinn Nam enn ekki verið opnaður Veitingastaðurinn Nam á Laugavegi hefur enn ekki verið opnaður. Eins og Markaðurinn greindi frá fyrir hálfu mánuðum hefur staðurinn verið innréttaður. Byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar kom hins vegar í veg fyrir að staðurinn yrði opnaður. Hann benti á skilyrði frá skipulagsnefnd um að veitingasalan mætti ekki sjást frá framhlið hússins. 24. september 2015 07:00
Joe & the Juice stefnir á að opna í húsnæði Asíu Veitingahúsið Asía mun loka eftir 27 ára rekstur á nýju ári við lítinn fögnuð aðdáenda staðarins. 3. desember 2015 10:53
Slást um veitingakvótann á Laugavegi Búið er að fyllta veitingareksturskvótann á miðborgarsvæðinu. Dæmi eru um að fast sé sótt að veitingamenn sem starfi á Laugaveginum gefi pláss sín eftir fyrir aðra veitingahúsaeigendur. Formaður borgarráðs segir kvóta nauðsynlega. 24. nóvember 2015 07:00
Nam á Laugavegi alveg tilbúinn en má ekki opna "Ég hef aldrei heyrt um svona skilyrði áður,“ segir eigandi staðarins sem á þó hlut í tuttugu veitingastöðum. 28. ágúst 2015 13:30