Stefnt á stofnun einkarekins grunnskóla í Hafnarfirði næsta haust Ingvar Haraldsson skrifar 22. desember 2015 07:00 Kristján Ómar Björnsson, eigandi Framsýnar, vonast til að skólinn taki til starfa næsta haust. fréttablaðið/valli
Stefnt er að því að opna nýjan einkarekinn grunnskóla í Hafnarfirði næsta haust. Fræðsluráð Hafnarfjarðar samþykkti umsókn Framsýnar skólafélags ehf. um stofnun skólans fyrir sitt leyti á fundi sínum á föstudaginn. Kristján Ómar Björnsson, eigandi Framsýnar, segir að nú taki við viðræður við menntamálaráðuneytið um öll tilskilin leyfi. Gangi það eftir þarf félagið að gera þjónustusamning við Hafnarfjarðarbæ. Stefnt er að því að 120 nemendur verði í skólanum innan þriggja ára. Fyrsta skólaárið verði allt að 45 nemendur í 9. bekk. Á öðru skólaárinu bætist við 10. bekkur og 8. bekkur á því þriðja. Skólinn mun byggja á vendikennslu, þar sem nemendur tileinka sér námsefnið á eigin spýtur en nýta tímann með kennara til að leysa vanda sem kemur upp í náminu. Kristján segir að áhersla verði lögð á að nýta sér kosti upplýsingatækninnar sem og íþróttaiðkun nemenda. „Við ætlum að nýta tæknina til fulls til þess að einstaklingsmiða nám meira en hefur verið gert hingað til.“ Í bókun frá meirihluta fræðslunefndar er áætlað að aukinn kostnaður fyrir Hafnarfjarðarbæ muni í mesta lagi nema 25 til 33 milljónum króna á næsta ári komi nemendurnir allir úr almennum grunnskólum í Hafnarfirði. Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna í fræðsluráði greiddu atkvæði gegn tillögunni. Þeir töldu ekki forsvaranlegt að leggja í aukin útgjöld til einkarekins skóla á meðan skorið væri niður í almennum grunnskólum Hafnarfjarðar. Ljóst væri að kostnaðurinn myndi aukast á næstu árum gengju áform um fjölgun nemenda eftir. Ekki liggur fyrir í hvaða húsnæði skólinn verður en Kristján segir að það verði tekið til skoðunar nú í kjölfar jákvæðra viðbragða fræðsluráðs.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira