„Ég skammast mín oft fyrir að líða illa því ég gæti haft það verr “ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. október 2015 09:52 Fjölmargir hafa deilt reynslusögum í styttra eða lengra formi, bæði í fyrrnefndum hópi en einnig á Twitter undir merkinu #égerekkitabú. Vísir/Getty
Stofnaður hefur verið nýr umræðurhópur á Facebook sem heldur utan um verkefnið „Geðsjúk, ég er ekki tabú!“. Markmiðið er að efla vitundarvakningu í sambandi við geðsjúkdóma og uppræta öll þau tabú sem snúa að slíkum sjúkdómum.Fjölmargir hafa deilt reynslusögum í styttra eða lengra formi, bæði í fyrrnefndum hópi en einnig á Twitter undir merkinu #égerekkitabú. Forsprakkar verkefnisins eiga það sameiginlegt að hafa glímt við þunglyndi og aðra andlega kvilla samhliða því. Þær Tara Ösp Tjörvadóttir, Silja Björk Björnsdóttir og Bryndís Sæunn S. Gunnlaugsdóttir hafa allar tjáð sig opinberlega um baráttu sína í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum. Hvetja þær aðra Íslendinga til að gera slíkt hið sama.Sem fyrr segir hafa fjölmargir gripið boltann á lofti eins og sjá má hér að neðan:#egerekkitabu Tweets Það er ekki bara á Íslandi sem umræða hefur verið um geðsjúkdóma í vikunni. John Oliver kom inn á málið í þætti sínum Last Week Tonight á mánudaginn. Oliver hefur lag á því að tækla erfið mál á upplýsandi og skemmtilegan hátt.Í gær fór svo fram málþing um andlega líðan íþróttamanna í Háskólanum í Reykjavík þar sem knattspyrnukappinn Ingólfur Sigurðsson sagði frá baráttu sinni undanfarin ár. Ingólfur var á sínum tíma einn efnilegasti leikmaður á Íslandi og fór ungur í atvinnumennsku til Heerenveen. Hann lýsti þeim vandamálum sem hann hefur glímt við undanfarin ár.Þær Tara, Silja og Bryndís leita eftir stuðningi fjöldans því aðeins í hans krafti takist að uppræta staðalímyndum og tabúum. „Við hvetjum fólk til að gerast meðlimir í hópnum og þar af leiðandi að verkefninu, bæði sjúklinga og aðstandendur. Hópurinn á að vera vettvangur jákvæðrar umræðu, tengingar og vaxtar,“ segir í tilkynningu frá hópnum. Samhliða Facebook-hópnum verður sett af stað Twitter-herferið, PicBadge-herferð og vinnur Tara að ljósmyndaverkefni sem sýna á hundrað andlit þunglyndis. „Einnig stefnum við á að halda daginn 10.október hátíðlegan, þar sem hann er Alþjóðlegur dagur andlegrar heilsu. Þá ætlum við að hvetja fólk til að tjá sig opinberlega um andlega heilsu sína og ganga í grænum fötum, málstaðnum til stuðnings. Stofnaður verður sérstakur Facebook-event og getur fólk fylgst með umræðunni undir merkinu #égerekkitabú.“
Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira