Viðskipti innlent

Ný skip fyrir 23 milljarða til landsins 2016

svavar hávarðsson skrifar
Reykjavíkurhöfn. Mjög er aðkallandi að yngja upp í fiskiskipaflota landsmanna.
Reykjavíkurhöfn. Mjög er aðkallandi að yngja upp í fiskiskipaflota landsmanna. fréttablaðið/vilhelm
Nýir samningar nokkurra stærstu útgerðarfyrirtækja landsins um kaup og smíði á nýjum skipum nema um 33 milljörðum króna. Samið hefur verið um smíði á tíu togurum og tveimur uppsjávarskipum.

Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbanka Íslands þar sem segir að þessar miklu fjárfestingar komi til af því að togaraflotinn sé orðinn gamall og úr sér genginn, en einnig hefur svigrúm íslenskra útgerðarfyrirtækja til fjárfestinga sjaldan verið meira á mælikvarða rekstrar og skuldsetningar, og þarf að leita aftur til síðustu aldamóta til að finna jafn hagstætt fjárfestingaumhverfi greinarinnar.

Verða skipin afhent á árunum 2015 til 2017. Flest þeirra verða afhent á næsta ári þegar skip að andvirði 23,2 milljarðar króna koma til landsins.

Í Hagsjá bankans er jafnframt tiltekið að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki skiluðu um 72 milljarða króna rekstrarhagnaði fyrir afskriftir (EBITDA) árið 2013, og tæpum 80 milljörðum árið á undan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×