Varabæjarfulltrúi sendir Elliða kaldar kveðjur: Allir nefndar- og stjórnarmenn séu úr hirð hans Jóhann Óli Eiðsson skrifar 29. desember 2015 23:31 Elliði Vignisson vísir/valli „
Það getur ekki verið hollt fyrir nokkurt bæjarfélag að allir þeir sem fara með ábyrgðarstöður á vegum bæjarins komi úr einhverjum þröngum hóp,“ ritar Georg Eiður Arnarsson varabæjarfulltrúi Eyjalistans í Vestmannaeyjum á Eyjar.net. Í pistli sínum gerir Georg upp árið 2015 frá sínum bæjardyrum. Þar ræðir hann meðal annars um ástand fasteignamarkaðarins í Eyjum, fráfall í fjölskyldu sinni og um lundaveiðar en Georg er einn reyndasti lundaveiðimaður eyjanna. Stærstur hluti pistilsins er hins vegar undirlagður bæjarpólitíkinni þar sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, fær kaldar kveðjur.Georg Eiður Arnarsonvísir/óskar friðrikssonLíkt og áður hefur verið nefnt er Georg varabæjarfulltrúi en auk þess er hann einnig í stjórn Náttúrustofu Suðurlands og í framkvæmda- og hafnarráði bæjarins. Í störfum sínum þar hefur hann lagt fram nokkrar tillögur og bókanir sem síðar eru teknar til umræðu í bæjarstjórn. „Meirihlutinn hefur, eins og ég bjóst við, verið á móti öllum tillögum og bókunum frá okkur á Eyjalistanum og það hvarflar að mér að við á Eyjalistanum séum að vinna fyrir bæjarbúa, en meirihlutinn fyrst og fremst fyrir bæjarstjórann og þennan hóp sem er í kring um hann,“ skrifar Georg. Samkvæmt Georgi virðist það vera annálað markmið bæjarstjórans að koma einhverjum „úr hirðinni“ í allar stjórnir og stofnanir á vegum bæjarins. Nýjasta dæmið segir hann vera að skipstjórinn á Lóðsinum sé ekki lengur varahafnarstjóri. Það hlutverk hafi verið fært í aðrar hendur og opinbera skýringin sé að það hafi verið vegna samstarfsörðugleika. „Þessu til viðbótar ganga síðan sögusagnir um út um allan bæ um að starf slökkviliðsstjóra, sem hættir núna um áramótin vegna aldurs, standi ekki varaslökkviliðsstjóra til boða, sem starfað hefur í slökkviliði Vestmannaeyja í yfir 40 ár, né heldur eigi að auglýsa stöðuna, heldur standi til að setja þetta mikilvæga starf í hendurnar á einhverjum úr hirðinni í kring um bæjarstjórann.“ Pistilinn endar Georg á því að óska Eyjamönnum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira