Dagur: Þurfum að sýna annað andlit Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. apríl 2015 15:30 Vísir/Getty
Það er stórleikur í þýsku úrvalsdeildinni í dag en þá tekur Füchse Berlin, lið Dags Sigurðssonar, á móti HSV Hamburg. Hamburg hefur verið í miklum fjárhagslegum vandræðum og var félaginu naumlega bjargað frá gjaldþroti. Það fékk ekki keppnisleyfi í þýsku úrvalsdeildinni fyrr en um seint og síðir en liðið er þó engu að síður í áttunda sæti deildarinnar sem stendur. Füchse Berlin, sem hefur verið í vandræðum með leikmannahóp sinn vegna tíðra meiðsla lykilmanna, er í sjöunda sætinu. Dagur lætur af störfum sem þjálfari liðsins í sumar og vill koma liðinu í Evrópukeppni áður en hann hættir. Hamburg virðist í góðu formi en liðið vann nýverið sigur á Magdeburg, liði Geirs Sveinssonar, sem er í baráttu um þriðja sæti deildarinnar. Füchse Berlin, sem fór vel af stað eftir HM-fríið, steinlá fyrir Melsungen í síðustu umferð, 31-24. „Við spiluðum illa gegn Melsungen og við þurfum í öllu falli að sýna annað andlit gegn HSV. Nú er komið að leikjunum þar sem við þurfum virkilega á stuðningi okkar áhorfenda að halda,“ sagði Dagur í samtali við þýska fjölmiðla. Bæði lið eru með 28 stig en Füchse Berlin á leik til góða. Liðið er sex stigum á eftir Göppingen sem er í fimmta og síðasta Evrópusætinu sem stendur. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD og hefst klukkan 17.00.
Handbolti Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Sjá meira