Samgöngur lamast: Reykjanesbrautin og Hellisheiðin lokaðar Stefán Árni Pálsson skrifar 10. mars 2015 14:19 Hviður allt að 40-55 m/s á Kjalarnesi, í Hvalfirði, undir Hafnarfjalli og norðan til á Snæfellsnesi. vísir/vilhelm
Búið er að loka veginum um Reykjanesbraut, Hellisheiði, Sandskeið, Þrengsli, Kjalarnes og Mosfellsheiði. Hálka og skafrenningur eru á Reykjanesbraut og á flestum öðrum leiðum á Reykjanesi og versnandi veður. Óveður og hálka er á Grindavíkurvegi. Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði og vaxandi vindur. Óveður er undir Hafnarfjallinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Hálka eða snjóþekja er á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi en þó er þæfingsfærð efst á Landvegi. þungfært er á Krísuvíkurvegi. Það er hálka eða snjóþekja á Vesturlandi og sumstaðar éljagangur eða skafrenningur. Þæfingsfærð með skafrenningi er í Staðarsveit. Ófært er á Fróðárheiði. Þæfingsfærð og skafrenningur er norðan megin í Hvalfirðinum. Á Vestfjörðum er víða hálka og snjóþekja og eitthvað um skafrenning. Það er hálka, snjóþekja eða hálkublettir á Norðurlandi. Á Austurlandi eru hálkublettir. Hálka eða snjóþekja er með suðausturströndinni og sumstaðar élja. Spáð er miklum hvelli í dag sem gengur nokkuð hratt yfir landið og á láglendi sunnan- og vestanlands nær að hlána. Suðvestanlands er útlit fyrir allt að 25-28 m/s í eftirmiðdaginn. Vegagerðin vekur sérstaka athygli á erfiðum akstursskilyrðum á Reykjanesbraut á milli kl. 13 og 17. Hviður allt að 40-55 m/s á Kjalarnesi, í Hvalfirði, undir Hafnarfjalli og norðan til á Snæfellsnesi. Eins vestan til undir Eyjafjöllum. Snjóbylur verður á flestum fjallvegum og eins a.m.k. fyrst í stað um tíma á láglendi. Snýst í S- og SV-átt upp úr kl. 18, stormur framan af og áfram skafrenningskóf s.s. á Hellisheiði fram eftir kvöldi.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira