Lögreglumaður á meðal þeirra fyrstu samkynhneigðu til að giftast í Flórída Kjartan Atli Kjartansson skrifar 13. janúar 2015 20:00 Hér eru Currie og Woodard að innsigla hjónabandið með kossi.
Lögreglumaðurinn David Currie og Aaron Woodard voru fyrstu samkynhneigðu mennirnir til að giftast löglega í Flórída-fylki í Bandaríkjunum. Þeir giftu sig skömmu eftir miðnætti á þriðjudaginn í síðustu viku, eingöngu nokkrum mínútum eftir að lög um hjónaband samkynhneigðra tóku gildi. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var Currie í lögreglubúningi sínum, en hann starfar sem rannsóknarlögreglumaður. „Þetta er æðisleg tilfinning," segir Currie í samtali við Miami Herald og bætir við: „Ég er ekki eingöngu spenntur mín vegna, heldur einnig vegna þess hvað þetta hefur mikla þýðingu fyrir fylkið í heild sinni. Fyrir fólk sem hefur átt feril eins og ég, þar sem það þykir ekki í lagi að vera samkynhneigður, þar sem það er ekki samþykkt." Hann sagðist hafa beðið yfirmenn sína í lögreglunni um leyfi til þess að fá að vera í búningnum. „Þegar hermenn gifta sig þá eru þeir gjarnan í sínum búningum. Því spurði ég hvort ég mætti vera í mínum." Scott Israel, yfirmaður Currie, sagðist hafa verið stoltur af Currie og samþykkti beiðnina á staðnum, að Currie myndi klæðast lögreglubúningi. Þeir Currie, sem er fimmtugur, og Woodard, sem er 33 ára, kynntust í Fort Lauderdale fyrir ári síðan. Þeir hafa verið samþykktir sem fósturforeldrar og hyggjast ættleiða börn á næstu misserum. Hér að neðan má sjá sjónvarpsfrétt um hjónabönd samkynhneigðra í Flórída.
Mest lesið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Bay segir skilið við Smith Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Hver er Endakallinn frá Ibiza? Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Stutt í að uppselt verði í heilt og hálft Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Walking Dead-leikkona látin Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Gekk hringinn í kringum landið fyrir vannærð börn í Afríku Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Terry Reid látinn Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum „Mig langar ekki lengur að deyja“ Loni Anderson er látin Sjá meira