Kröfugerð mótuð fyrir komandi kjarasamninga Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 25. janúar 2015 13:12
Starfsgreinasambandið hefur lokið við að móta kröfugerð sína fyrir komandi kjarasamninga, og verður hún afhent Samtökum atvinnulífsins á morgun. Formaður SGS segist vera fullur bjartsýni og vonast til að viðræður hefjist um leið og SA hafa lesið kröfugerðina yfir. Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins mun koma saman í Reykjavík á fimmtudag þar sem hafist var vanda við að móta kröfugerð SGS fyrir komandi kjarasaminga, en áður höfðu félögin sent sínar eigin kröfugerðir inn til sambandsins. Samninganefnd SGS hittist svo á löngum fundi í Karphúsinu á föstudag til að leggja lokahönd á kröfugerðina. Eftir langar umræður samþykkti nefndin samhljóða sameiginlega kröfugerð sem afhent verður Samtökum atvinnulífsins á morgun. Mikill hugur var í fundarmönnum og samstaðan ríkjandi. Björn Snæbjörnsson er formaður Starfsgreinasambandsins. „Félögin hafa verið með alls konar kannanir á fundi úti í félögunum og svo núna á fimmtudaginn var þá komum við saman og ræddum það sem hafði komið frá félögunum og þannig að það er búin að vera mikil vinna og góð vinna og mikil samstaða,“ segir Björn. Björn vill ekki tjá sig um innhald kröfugerðarinnar að svo stöddu, en heimildir fréttastofu herma að hún hljómi upp á tugþúsunda króna hækkun lágmarkslauna, sem eru nú 214 þúsund. „Vonandi fara af stað viðræður um þær kröfur og að reyna að klára samning, hann rennur út núna 28.febrúar þannig að við höfum mánuð til stefnu ef við ætlum að ná að klára samning áður en hinn rennur út. Þannig að ég vona bara að menn fari í þessa vinnu.” Samtök atvinnulífsins sendu í vikunni frá sér tilkynningu þar sem fram kom að ef laun á vinnumarkaði hækka jafn mikið og laun lækna næstu þrjú árin mun það valda mikilli verðbólgu, gengislækkun krónunnar og verulegri hækkun verðtryggðra skulda. Skuldir heimilanna gætu hækkað um 500 milljarða. Björn gefur lítið fyrir þessi rök. „Það fer allt af stað og varað við að það megi alls ekki hækka þessi lægstu laun en það heyrist ekki söngur þegar aðrar stéttir fá meira, allt upp í 30 prósenta kauphækkun. Þá er eins og allt sé í lagi en þegar við erum að sækja fyrir okkar folk þá fer allt af stað. Það er alveg ljóst að í okkar félögum er okkar folk tilbúið til að fara í aðgerðir til að fylgja þessum kröfum eftir, þannig að við erum full bjartsýni,” segir Björn
Mest lesið Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Innlent Vill kvittanir frá framboði Höllu Innlent Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Innlent Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Innlent Börnin eru fundin Innlent Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Innlent Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Innlent Meðhöndlarinn farinn að nudda á Kvíabryggju Innlent Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Innlent Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Erlent Fleiri fréttir Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Vill kvittanir frá framboði Höllu Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Háspennubilun í Breiðholti Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Soffía er nýr skólameistari FSu Forsetakosningar, kjaradeilur og hundrað kílómetra ganga Tveir bílar skullu saman í Kolgrafarfirði Ungmenni kveiktu í skólabókum Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Börnin eru fundin Heilablóðfall sjaldgæfur fylgikvilli eftir ósæðarlokuskipti Efling vísar deilu við borgina til sáttasemjara Stefnir í að losunarskuldbindingar náist Andrea Kristín enn dæmd í fangelsi Lending í Nauthólsvík lengi ferðina um korter til tuttugu mínútur Brosandi þótt aftur sé ekið á flugvél Verzlinga Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu fer fram í sumar Ástþór eyðir langmestu Kosningaúrslit yfirleitt nálægt niðurstöðum kannana „Þetta er bara eins og að finna gull“ Þyrlulæknar ósáttir og Ísfirðingar fagna heitavatnsfundi Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Taldir hafa sviðsett árekstur í Hafnarfirði Myndi ekki syrgja brotthvarf neftóbaksins Fluttur með þyrlu vegna vinnuslyss á bóndabæ Flugferð aflýst eftir að þjónustubíll rakst í flugvél Meðhöndlarinn farinn að nudda á Kvíabryggju Sjá meira