Reimleikinn í Hvítárnesi: Sparkað úr rúminu og greinilegt kvenmannsandlit í eldhúsglugganum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 20. febrúar 2015 15:00 Ein sagan um ólánskonuna sem á að sitja um skálann er að eiginmaðurinn hafi höggvið af henni handlegginn og síðan drekkt henni í Tjarná, fyrir neðan bæinn, fyrir að eiga vingott við annan mann.
Eflaust kannast einhverjir við söguna um drauginn í Hvítárnesskála, austan Hvítárvatns á Kili. Helst eru það karlmenn sem segjast hafa orðið varir við reimleika í skálanum, en þeir telja að um ásókn kvendraugs sé að ræða á menn sem gista í ákveðinni koju í skálanum. „Draugakojan“ er hún jafnan kölluð. Hún snýr þvert, ólíkt öðrum kojum í skálanum, og er staðsett við dyrnar.Öllum þremur sparkað úr kojunni Gylfi Sævarsson er einn þeirra sem kann sögur af reimleika í skálanum, en honum var „sparkað“ úr kojunni, í orðsins fyllstu merkingu. Hann hafði verið á ferðalagi ásamt þremur félögum sínum um Kjalveginn forna og sváfu þeir í skálanum, sem er elsta sæluhús landsins. „Við byrjuðum að mana hvorn annan í að sofa í kojunni, þessari frægu koju sem karlmönnum er sparkað úr. Við skiptumst á og einn byrjaði að sofa í kojunni. Honum var sparkað úr og kom þá upp til okkar, en við sváfum á efri hæðinni,“ sagði Gylfi í Reykjavík síðdegis. „Við gerðum smá grín að honum,“ bætti hann við.Kossaflens hjónanna varði stutt. „Sáum okkur ekki annað fært en að yfirgefa húsið. Í guðs friði.“Læti í eldhúsinu Næsti fór þá í kojuna umræddu og sagan endurtók sig. Sá hafði þá verið í kojunni í tæpan klukkutíma. Gylfi ákvað þá að reyna við kojuna sjálfur. „Ég lendi í því nákvæmlega sama. Það var greinilegt spark í bakið og á gólfið fer ég. Ég festist í svefnpokanum og heyri svo læti þarna í kringum mig. Þannig að við fórum allir upp á efri hæðina og sváfum í litlu herbergi sem hægt er að loka. Þá heyrðum við læti og skarkala í eldhúsinu, eins og það væri verið að slá saman pottum, alla nóttina,“ sagði hann og bætti við að lítið hafi verið um svefn þessa nóttina. Aðspurður hvort höggið sem hann fékk í bakið hafi verið mikið, segir hann svo ekki hafa verið. Það hafi þó verið ákveðið og greinilegt að einhver vildi koma honum úr rúminu. „Þetta var í hæsta móti óeðlilegt, að minnsta kosti,“ sagði hann.Hver sem saga konunnar var og þrátt fyrir blessunarathöfn séra Björns H. Jónssonar árið 1996 virðist ekkert lát vera á reimleikanum í Hvítarnesskála.„Greinilegt konuandlit“ Draugasögu þeirra félaga lauk þó ekki þarna því þeir ákváðu í lok ferðar að láta taka af þeim mynd fyrir framan skálann. „Ferðafélagi minn hringir og biður mig um að koma heim til sín að skoða myndina. Hann réttir mér myndina og spyr hvort ég sjái eitthvað óeðlilegt. Við höfðum stillt okkur upp fyrir framan eldhússkólann áður en við fórum í burtu og það var alveg greinilegt konuandlit í glugganum að horfa á okkur, frekar illum augum,“ sagði Gylfi en bætir við að myndin sé nú týnd. Gerð hafi verið leit að henni, án árangurs. Þó muni þeir halda áfram að leita að myndinni.Sváfu í bílnum og munu aldrei gista í skálanum aftur.Hvítárnesskáli er elsti skáli Ferðafélags Íslands, reistur 1929. Gengið hafa sagnir um reimleika á staðnum allt frá því að skálinn var byggður og sagt er að um sé að ræða gráklædda stúlku sem ekki láti karlmennina í skálanum í friði. Sitt sýnist hverjum og ýmsar hugmyndir uppi, en í sögunni Konan við Hvítárvatn segir:„Fáa metra frá skálanum við Hvítárvatn eru fornar tættur. Þar var bær fyrr á öldum er Tjarnarkot hét. Tjarná rennur þar fram hjá út í Hvítárvatn. Þjóðsagan segir að á þessum bæ hafi verið piltur og stúlka í tilhugalífi og stúlkan horfið.Talið var að pilturinn hafi fyrirfarið henni af því að hún var þunguð af hans völdum.“Gylfi Sævarsson deildi upplifun sinni með Jóni Óttari í þættinum Dulda Ísland á dögunum, en stutt brot úr viðtalinu má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Mest lesið Vaktin: Maduro handtekinn eftir árás á Venesúela Erlent Rennibrautinni lokað eftir fjölda óhappa Innlent Bandaríkin sprengja í höfuðborg Venesúela Erlent Íslenskur maður lést í Úkraínu Innlent Eldur við flugvöll á Grænlandi Erlent „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Innlent Spunaleikari vill annað sæti Samfylkingarinnar í borginni Innlent Sjálfstæðismenn sveiflast upp en jafnaðarmenn dala í Reykjavík Innlent Vilhjálmur tekur oddvitaslaginn í Reykjanesbæ Innlent Sprenging eftir að gestir opnuðu út Erlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn sveiflast upp en jafnaðarmenn dala í Reykjavík Rýnt í stöðuna í Venesúela og Sjálfstæðisflokkurinn á flugi Rennibrautinni lokað eftir fjölda óhappa Dóra Björt vill þriðja eða fjórða sæti Vilhjálmur tekur oddvitaslaginn í Reykjanesbæ Spunaleikari vill annað sæti Samfylkingarinnar í borginni „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Íslenskur maður lést í Úkraínu Nýársbarnið á Suðurlandi býr á Eyrarbakka Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Verðlækkanir á bensíni og áramótaheit landsmanna 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Sjá meira