Tom Ford leikstýrir Clooney Adda Soffia Ingvarsdottir skrifar 26. mars 2015 15:00 Tom Ford Vísir/getty
Breski tískuhönnuðurinn Tom Ford, mun að öllum líkindum setjast aftur í leikstjórastólinn á næstunni. Að þessu sinni mun hann leikstýra engum öðrum en George Clooney. Ford, sem leikstýrði síðast kvikmyndinni A Single Man árið 2009 með Colin Firth í aðalhlutverki, er orðaður við leikstjórn í myndinni Nocturnal Animals. Handritið verður byggt á bókinni Tony and Susan eftir Austin Wright, en það var Tom Ford sem skrifaði handritið að þessum póstmóderníska trylli. Bókin Tony and Susan kom fyrst út árið 1993 og fjallar um konu að nafni Susan, sem fær einn góðan veðurdag óvænta sendingu frá fyrrverandi eiginmanni sínum, Edward, sem hún hefur ekki talað við í tuttugu ár. Í sendingunni er handrit að bók sem hann hefur skrifað og biður hann hana um að lesa það yfir og segja honum álit sitt á því. Bókin skiptist þá í tvo hluta; söguna sem Susan les, Nocturnal Animals, sem fjallar um mann sem fer í frí með fjölskyldunni sinni, en fríið snýst upp í andhverfu sína og endar með skelfilegum hætti.Og svo sjálfa bókina þar sem við fylgjumst með Susan lesa handritið og við það rifjast upp fyrir henni fyrra hjónaband hennar og dimm leyndarmál um sjálfa sig. Gerð myndarinnar er aðeins á frumstigi, en hún hefur nú þegar fengið mikla athygli. Ford er þekktastur fyrir að hafa bjargað tískurisunum Gucci og Yves Saint Laurent og komið þeim á þann stall sem þeir eru í dag, áður en hann stofnaði sitt eigið tískumerki. Ást hans á kvikmyndum ýtti honum á endanum út í kvikmyndagerð. Hann, eins og áður sagði, skrifaði, leikstýrði og framleiddi kvikmyndina A Single Man. Myndin verður framleidd af fyrirtæki Fords, Smokehouse Pictures, ásamt meðeiganda hans Grant Heslov.
Mest lesið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Lífið Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Fleiri fréttir Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Sjá meira