Malín Agla ætlar að verða heimsmeistari 17. september 2015 13:00 Uppáhaldsflík Malínar Öglu er risastór hvít kósípeysa. "Ég lifi í henni og ég vil meina að allir eigi að eiga eina stóra góða kósípeysu inni í fataskáp!“ GVA
Malín Agla Kristjánsdóttir nemi er á leið til Grikklands og Noregs á morgun til að fara í dansprufur í leit að rétta dansherranum en hún er án dansherra þessa stundina. Hún stefnir hátt í dansheiminum en markmiðið er að verða heimsmeistari einn daginn. „Ég er númer níu á heimslistanum í tíu dönsum í dag, svo ég á ekki langt í land.“ Malín spáir mikið í tísku og finnst gaman að setja saman mismunandi flíkur og liti og prófa eitthvað nýtt og öðruvísi.Hefurðu lengi pælt í tískunni? Ég hef alltaf verið meðvituð um hana en ég byrjaði ekki að pæla í henni fyrr en ég flutti til Kaupmannahafnar árið 2012. Þar fékk ég rosalega mikinn innblástur og stíllinn minn breyttist mikið og hratt á meðan ég bjó þar. Svo flutti ég til Frakklands 2014 og þá má segja að tískuáhuginn hafi farið á flug.Hvernig klæðir þú þig hversdags? Ég get nú ekki sagt að ég sé „gallabuxur og bolur-týpan“ því mér finnst svo rosalega gaman að prófa mig áfram. Ég reyni alltaf að vera í einhverri nýrri fatasamsetningu á hverjum degi. Ég á þó daga þar sem aðeins erfiðara er að koma sér fram úr og þá dett ég stundum í gallabuxna- og kósípeysu-gírinn.Hvernig klæðir þú þig spari? Mér finnst rosalega gaman að klæðast fínum kjól og hælum þegar ég get. Svo er líka flott að para saman flottar gallabuxur, fínan bol og blazer-jakka með töffarastígvélum eða klassískum pinnahælum.Hvernig lýsir þú stílnum þínum? Klassískur, kynþokkafullur, fágaður og stundum töff. Það er erfitt að nota bara fáein orð því stíllinn minn fer algjörlega eftir því hvernig skapi ég er í þann daginn!Hvað veitir þér mestan innblástur? Í augnablikinu fæ ég mikinn innblástur frá New York Fashion Week sem var að klárast í New York. Ég reyni að fylgjast með nýjustu tískustraumunum og halda mér í takt við þá þó svo mér finnist gaman að klæða mig eins og ég vil.Hvar kaupir þú fötin þín? Ég kaupi flest öll fötin mín í útlöndum eða á netinu en ein búð hérna heima sem ég elska er Zara. H&M er líka klassísk og ég heimsæki líka Topshop og Gallerí 17 mikið.Hver er uppáhaldsflíkin þín? Uppáhaldsflíkin mín er risastór hvít kósípeysa sem ég keypti í H&M. Ég lifi í henni og ég vil meina að allir, stelpur og strákar, eigi að eiga eina stóra góða kósípeysu inni í fataskáp!Uppáhaldshönnuður? Nokkrir af uppáhaldshönnuðum eru Michael Costello, Vera Wang, Karl Lagerfield, Stella McCartney og þeir eru fleiri.Hverju verður bætt við fataskápinn fyrir haustið? Ég er að leita mér að nýrri kápu í einhverjum fallegum haustlit því mig vantar eina svoleiðis í fataskápinn núna. Svo verður örugglega nokkrum rúllukragabolum, sætum ökklastígvélum og fallegum treflum bætt við inn í fataskápinn á næstunni.Hver er helsti veikleiki þinn þegar kemur að tísku og útliti? Minn helsti veikleiki er örugglega skór og förðunarvörur. Mér finnst mig alltaf vanta meira af þessu og ég á alveg örugglega aðeins meira en maður þarf að eiga?…Hvers konar fylgihluti notarðu? Ég er alltaf með gullarmband og hálsmen sem ég fékk frá mömmu minni, ég tek þetta aldrei af mér. Svo finnst mér fallegt að vera með gullhringi og svo demantseyrnalokka eða eitthvað mjög einfalt. Svo er ég alltaf með handtöskuna mína með mér hvert sem ég fer og svartan trefil, núna þegar það er byrjað að kólna örlítið.Áttu þér tískufyrirmynd? Allar mínar tískufyrirmyndir eru Hollywood-stjörnur en þær eru meðal annars Khloe Kardashian, Kim Kardashian West, Gigi Hadid, Kendall Jenner, Hailey Baldwin og margar fleiri. Annars eru bara allir í kringum mig líka tískufyrirmyndir. Mér finnst rosalega gaman að fylgjast með tískunni í kringum mig því hún er mjög fjölbreytt. Ég fæ innblástur frá öllu og öllum og ef ég sé einhvern í flík sem mér finnst flott eða áhugaverð hika ég ekki við að spyrja um hana.
Mest lesið Calvin Harris orðinn faðir Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Sjónræn tónlistarhátíð í fyrsta sinn Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fleiri fréttir „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Calvin Harris orðinn faðir Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Sjá meira