Hanna taupoka til höfuðs ofbeldi guðrún ansnes skrifar 17. apríl 2015 08:38 Katla Rós með pokann góða uppá arminn og svo pokana frá árinu 2011 í bakrgrunni. „
Það getur verið erfitt að gera efni fyrir svona herferðir og komast hjá því að þetta verði of klisjulegt,“ segir Katla Rós Völudóttir, einn hönnuða Stúdíó Steypu sem stendur á bak við Fokk ofbeldi pokana. Eru þeir hannaðir í samstarfi við UN Women á Ísland og rennur ágóðinn til styrktarsjóðs Sameinuðu þjóðanna, þar sem fókusinn er settur á afnám ofbeldis gegn konum. „Við fengum með okkur þrjá atvinnudansara til að móta stafina og svo myndaði Saga Sig fyrir okkur. Við erum reglulega ánægð með útkomuna,“ segir Katla Rós. Hún segir afar táknrænt og gildishlaðið að nota mannslíkamana í stafagerðina. „Við þurfum að fá fólk til að vinna saman, fólk þarf að taka saman höndum og gera eitthvað í sameiningu.“ Pokarnir munu framleiddir í takmörkuðu upplagi, en gera má ráð fyrir að þeir spænist upp líkt og annað sem Stúdíó Steypa hefur komið nálægt fyrir samtökin. „Við hönnuðum herferðina í kringum armböndin sem komu út fyrr á árinu og þau gjörsamlega seldust upp,“ bendir Katla Rós á og bætir við að þau hafi einnig hannað pokana sem komu út árið 2011 og þóttu afar eftirsóknarverðir. „Fyrir mér eru þetta skemmtilegustu verkefnin, það að gera eitthvað svona sem getur svo gefið jafn ríkulega af sér og raun ber vitni er frábært,“ bætir Katla Rós einlæg við. Pokarnir fara í sölu um miðbik næstu viku, í svokölluðu Sumarpartýi UN Women þar sem skálað verður í hvítvíni og vonast eftir sumri.
Mest lesið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið Ellen verður að Dóru á ný Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Tala dýrsins 666 og Neró keisari Lífið „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Fleiri fréttir „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Sjá meira