Innlent

Slasaðist alvarlega í bílveltu í Hrútafirði

Slysið átti sér stað í grennd við Staðarskála.
Slysið átti sér stað í grennd við Staðarskála. vísir/Gva
Ökumaður, sem var einn í bíl sínum, slasaðist alvarlega þegar bíllinn valt út af veginum í Hrútafirði, skammt frá Staðarskála, um tíuleytið í gærkvöldi.

Kallað var á þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem sótti manninn og lenti með hann við Borgarspítalann laust fyrir klukkan eitt í nótt. Þar gekkst hann undir  aðgerð.

Maðurinn mun meðal annars hafa hlotið alvarleg meiðsli á höfði. Ekki er ljóst hvað olli slysinu en hálka var á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×