Engin bifreið á Norðurlandi með byssu Sveinn Arnarsson skrifar 23. desember 2015 06:00 Lögreglumaður kom á vettvang umferðarslyss í Ljósavatnsskarði í vetur vopnaður skammbyssu. Í svari embættis ríkislögreglustjóra segir að engin lögreglubifreið sé útbúin vopnum á svæðinu.
Átján almennar lögreglubifreiðar eru búnar skotvopnum á landinu öllu en í lok júní á þessu ári voru tólf almennar lögreglubifreiðar á landinu búnar skotvopnum. Sjö lögreglumenn féllu á skotvopnaprófi lögreglunnar á þessu ári. Þetta kemur fram í svari Jóns F. Bjartmarz, yfirlögregluþjóns hjá embætti ríkislögreglustjóra, við fyrirspurn Fréttablaðsins um vopnaburð íslensku lögreglunnar. Að sögn Jóns fá lögreglumenn 69 klukkustunda þjálfun í aðgerðum á hverju ári. Inni í því er skotvopnaþjálfun. Lögreglumenn skjóta um 400 skotum úr Glock-skammbyssum þar sem skotið er úr kyrrstöðu, á hreyfingu og undir álagi. „Á þessu ári voru sjö lögreglumenn sem ekki stóðust prófið. Æfingar og próf eru undir stjórn viðurkenndra skotvopnaþjálfara. Á þessu ári hafa 355 lögreglumenn hlotið þjálfun í notkun Glock og er þá sérsveitin meðtalin,“ segir Jón. „Varðandi fjölda bifreiða þá eru, auk bifreiða sérsveitar, 18 lögreglubifreiðar hjá lögregluliðunum búnar skotvopnum. Ein bifreið er hjá lögreglustjórunum á Suðurnesjum, fimm á höfuðborgarsvæðinu, fjórar á Vestfjörðum, fimm á Austurlandi og þrjár á Suðurlandi. Þær voru 12 í lok júní síðastliðins. Fjórar hjá lögreglustjórunum á Vestfjörðum, fimm á Austurlandi og þrjár á Suðurlandi,“ segir Jón. Athygli vekur að fjölgun bifreiða er aðeins á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Einnig vekur nokkra athygli í svari ríkislögreglustjóra að engin lögreglubifreið á Norðurlandi og Vesturlandi er útbúin skotvopnum. Ástæður þess að almennar lögreglubifreiðar eru útbúnar Glock-skammbyssum er til að stytta viðbragðstíma lögreglu þegar vá steðjar að og vopna er krafist. Er það gert til að tryggja öryggi borgaranna samkvæmt lögreglunni. Að mati lögreglunnar er hún ekki að vopnast umfram það sem verið hefur og ekki er verið að auka heimildir lögreglu til að vopnast frá því sem nú er. Einnig stendur ekki til að breyta því fyrirkomulagi að almennir lögreglumenn séu óvopnaðir við dagleg störf. Einnig þurfi að tryggja öryggi lögreglumanna. „Þá verður að hafa í huga vinnuverndarlöggjöf og skyldu vinnuveitanda til að gætt sé fyllsta öryggis og að starfsmenn hafi fullnægjandi þjálfun og búnað. Það er ekki forsvaranlegt að senda óvopnaða lögreglumenn til að eiga við aðila vopnaða skotvopnum,“ segir í svari Jóns Bjartmarz. „Ákvörðun um að geyma vopn í lögreglubifreiðum í stað þess að geyma þau á lögreglustöðvum er í höndum viðkomandi lögreglustjóra að höfðu samráði við ríkislögreglustjóra. Nokkur lögreglulið á landsbyggðinni hafa geymt vopn í lögreglubifreiðum undanfarin ár sökum þess að mat viðkomandi lögreglustjóra hefur verið að þörf sé fyrir slíkar ráðstafanir, m.a. til þess að stytta viðbragðstíma lögreglu komi til alvarlegra vopnamála,“ segir Jón. „Áhersla lögreglu á það að stytta viðbragðstíma snýr sérstaklega að nýjum tegundum árásaraðferða en ekki vopnaburði hefðbundinna afbrotamanna. Um er að ræða tilfelli þar sem stöðva þarf árásaraðila án nokkurrar tafar og tryggja vettvang svo hægt sé að veita lífsbjargandi aðstoð.“Hvernig fara skotpróf fram 1. Byssa tekin sundur og sett saman. Hámarkstími er 5 mínútur.2. 2x5 skot af 5 metra færi. Skotskífa er 30 cm x 30 cm, hvítt blað. Vopnið er tilbúið til notkunar í hulstri og hulstur smellt aftur. Eftir skipun er vopnið dregið úr hulstri og einu skoti skotið. Hámarkstími er 5 sekúndur. Vopn sett í hulstur og hulstri smellt aftur. Síðan endurtekið. Til að standast þennan hluta þurfa 4 skot af 5 að vera í skotskífunni.3. 5 skot af 7 m færi. Skotskífa er 30 cm x 30 cm að stærð, hvítt blað. Vopnið er tilbúið til notkunar og haldið í viðbragðsstöðu. Eftir skipun er einu skoti skotið. Hámarkstími er 5 sekúndur. Vopn sett í viðbragðsstöðu og síðan endurtekið. Til að standast þennan hluta þurfa 4 skot af 5 að vera í skotskífunni.
Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Fleiri fréttir Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Setja lög á verkfall flugvirkja Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Sjá meira