Mexíkóskur eiturlyfjabarón fannst myrtur Atli Ísleifsson skrifar 29. desember 2015 15:14 Réttarlæknar segja að fjórmenningarnir hafi verið pyndaðir og drepnir áður en líkum þeirra var komið fyrir á bílaplani við hraðbraut. Vísir/AFP
Carlos Rosales Mendoza, stofnandi eins af alræmdustu eiturlyfjahringjum Mexíkó, hefur verið myrtur. Lík Rosales Mendoza fannst auk þriggja til viðbótar á hraðbraut í Morelia-fylki í vesturhluta Mexíkó, en allir höfðu verið skotnir til bana. Hinn 52 ára Rosales Mendoza var einn stofnenda eiturlyfjahringsins La Familia Michoacana, en liðsmenn hans höfðu orð á sér fyrir að vera sérstaklega ofbeldisfullir. Réttarlæknar segja að fjórmenningarnir hafi verið pyndaðir og drepnir áður en líkum þeirra var komið fyrir á bílaplani við hraðbraut. Ekki liggur fyrir hver ber ábyrgð á morðunum. Rosales Mendoza hafði lengi verið viðriðinn eiturlyfjaviðskipti og stofnaði sín eigin samtök, La Familia Michoacana, eða Michoacana-fjölskyldan, árið 2000 í höfuðið á fylkinu þar sem hann ólst upp. Samtökin seldu eiturlyf í stórum stíl en liðsmenn þeirra voru hvattir til að sleppa því að neyta þeirra sjálfir. Samtökin kváðust standa vörð um þá fátæku og hefðbundin fjölskyldugildi. Rosales Mendoza er sagður hafa þjálfað marga þá sem síðar hafa stýrt eiturlyfjasamtökum í landinu – menn eins og Servando „La Tuta“ Gomez, Enrique „El Kike“ Plancarte, Nazario Moreno og Dionicio „El Tio“ Loya Plancarte. Árið 2004 skipulagði hann vopnaða árás á öryggisfangelsi þar sem 25 fangar sluppu og var sjálfur handtekinn vegna málsins. Hann varði næsta áratuginn í fangelsi. Mexíkósk yfirvöld skáru fyrir nokkru upp herör gegn skipulagðri glæpastarfsemi í Mexíkó og höfðu óttast að Rosales Mendoza ynni nú að frekari uppbyggingu glæpasamtaka sinna.
Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira