Bíó og sjónvarp

Hrútar ekki tilnefnd til Óskarsverðlauna

Atli Ísleifsson skrifar
Kvikmyndin Hrútar hefur unnið til fjölda verðlauna á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum á árinu.
Kvikmyndin Hrútar hefur unnið til fjölda verðlauna á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum á árinu. Mynd/Brynjar Snær Þrastarson
Búið er að birta lista yfir þær níu myndir sem enn koma til greina í flokki yfir bestu erlendu kvikmynd ársins á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fer í lok febrúar. Kvikmynd Gríms Hákonarsonar, Hrútar, er ekki í þeim hópi.

Hrútar var áður á lista yfir þær áttatíu myndir sem komu til greina. Á vef Variety má sjá lista yfir þær níu myndir sem enn koma til greina, og er sérstaklega minnst á að Hrútar séu ekki í þeim hópi.

Þær myndir sem enn koma til greina eru (með enskum titlum):

  • Frá Kólumbíu: Embrace of the Serpent, Ciro Guerra leikstjóri
  • Frá Belgíu: The Brand New Testament, Jaco Van Dormael leikstjóri
  • Frá Danmörku: A War, Tobias Lindholm leikstjóri
  • Frá Finnlandi: The Fencer, Klaus Härö leikstjóri
  • Frá Frakklandi: Mustang, Deniz Gamze Ergüven leikstjóri
  • Frá Þýskalandi: Labyrinth of Lies, Giulio Ricciarelli leikstjóri
  • Frá Ungverjalandi: Son of Saul, László Nemes leikstjóri
  • Frá Írlandi: Viva, Paddy Breathnach leikstjóri
  • Frá Jórdaníu: Theeb, Naji Abu Nowar leikstjóri
14. janúar næstkomandi verður tilkynnt um hvaða fimm hljóta lokatilnefningu í flokknum.

 


Tengdar fréttir

Fá Hrútar Evrópsku kvikmyndaverðlaunin?

Í kvöld verða Evrópsku kvikmyndaverðlaunin veitt í Berlín. Verðlaunin eru veitt af Evrópsku kvikmyndaakademíunni. Kvikmyndin Hrútar er meðal þeirra sex mynda sem tilnefndar eru sem kvikmynd ársins.

Kvikmyndin Hrútar halar inn verðlaunum

Hrútar hafa sópað að sér verðlaunum á árinu. Myndin er tilnefnd sem besta kvikmyndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum sem verða afhent í Berlín um helgina.

Hrútar unnu aðalverðlaunin í Zürich

Kvikmyndin Hrútar vann um helgina "Gullna augað“ á kvikmyndahátíðinni í Zürich í Sviss. Þetta eru aðalverðlaunin í flokki alþjóðlegra kvikmynda í fullri lengd en alls tóku fimmtán myndir þátt í keppninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×