Vígamenn felldu rússneskan hermann í björgunaraðgerð 25. nóvember 2015 07:45 Vísir/EPA
Rússneskur landgönguliði féll þegar hann var um borð í þyrlu innan landamæra Sýrlands þar sem freista átti að bjarga flugmanni herþotu sem Tyrkir skutu niður í gær. Maðurinn féll þegar uppreisnarmenn á jörðu niðri skutu á þyrluna þar sem hún flaug yfir Latakia héraði. Flugmenn herþotunnar í gær voru tveir og var annar skotinn til bana af uppreisnarmönnum í fallhlíf sinni á leið til jarðar en hinn er talinn vera í haldi vígamanna.Hér má sjá upplýsingar um vélina sem skotin var niður.Vísir/GraphicNewsYfirmenn NATÓ segjast standa við bakið á Tyrkjum í málinu en Rússar hafa varað við alvarlegum afleiðingum atviksins. Tyrkir segja rússnesku vélina hafa verið í lofthelgi Tyrklands en Rússar staðhæfa að hún hafi verið innan sýrlensku landamæranna.Sjá einnig: Rússnesku flugmennirnir skotnir á leið til jarðar í fallhlífum Þá segja Rússar að Tyrkir hafi ekki reynt að ná sambandi við flugmenn vélarinnar áður en þeir skutu á hana. Tvær þyrlur voru notaðar til leitarinnar í gær, en lenda þurfti annarri eftir að skotið var á hana frá jörðu. Um er að ræða þyrluna sem landgönguliðinn sem lést var í. Uppreisnarhópurinn Free Syrian Army birti í gær myndband af því þegar þeir notuðu Bandarískt TOW flugskeyti til að sprengja þyrluna í loft upp.Uppreisnarmenn birtu í gær myndband þar sem þeir skjóta bandarísku flugskeyti á þyrluna eftir að flugmenn hennar þurftu að lenda henni Latakia héraði.
Tengdar fréttir Rússar herða loftárásir Rússar hafa undanfarna daga hert loftárásir sínar á það sem þeir kalla hryðjuverkatengd skotmörk í Sýrlandi. 21. nóvember 2015 11:33 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Sjá meira
Rússar herða loftárásir Rússar hafa undanfarna daga hert loftárásir sínar á það sem þeir kalla hryðjuverkatengd skotmörk í Sýrlandi. 21. nóvember 2015 11:33