Formúla 1

Lasinn Lewis Hamilton tekur þátt í Brasilíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton seinkar að læknisráði en verður með í Brasilíu.
Lewis Hamilton seinkar að læknisráði en verður með í Brasilíu. Vísir/Getty
Lewis Hamilton neyddist til að seinka flugi sínu til Brasilíu, vegna veikinda. Hann mun þá taka þátt í keppninni að sögn talsmanns Mercedes.

Hamilton átti að koma til Brasilíu í gær og veita viðtöl aflýsti viðtölunum og frestaði fluginu.

Orðrómur hefur verið á kreiki um að heimsmeistarinn muni missa af keppninni sem fram fer á Interlagos brautinni um helgina. Mercedes hefur sagt að Hamilton fljúgi til Brasilíu í kvöld.

„Hann mun ekki missa af keppninni,“ sagði talsmaður Mercedes liðsins. „Honum seinkar um einn dag, læknirinn ráðlagði honum að fresta fluginu, þess vegna missti hann af blaðamananfundinum í dag,“ bætti talsmaðurinn við.

Hamilton sagði nýlega að hann myndi leggja allt í sölurnar til að vinna í Brasilíu. Interlagos er ein þriggja brauta á keppnisdagatalinu í ár þar sem Hamilton á eftir að vinna keppni.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Mikilvægur mexíkóskur kappakstur

Fyrsta Formúlu 1 keppnin í Mexíkó síðan árið 1992 fór fram um liðna helgi. Farið verður yfir allt það helsta frá helginni í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Haas: Undirvagninn okkar betri en Ferrari

Gene Haas, eigandi Haas F1 liðsins sem hefur keppni í Formúlu 1 á næsta ári segir a undirvagn liðs síns verði líklegast betri en undirvagn Ferrari liðsins.

Lewis Hamilton vann og varð heimsmeistari

Lewis Hamilton á Mercedes varð heimsmeistari ökumanna 205 þegar hann kom fyrstur í mark í bandaríska kappakstrinum. Hann tryggði sér sinn þriðja heimsmeistaratitil. Hamilton er fyrsti Bretinn til að verja heimsmeistaratitil sinn.

Ferrari býður Red Bull líflínu

Ferrari hefur nú boðið Red Bull aftur að samningaborðinu. Red Bull hefur enn ekki orðið sér út um vél fyrir næsta ár en líkurnar eru nú með liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×