Formúla 1

Ferrari býður Red Bull líflínu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Sebastian Vettel, Daniil Kvyat og Kimi Raikkonen í Singapúr. Ætli það verði Ferrari vél í Red Bull bílnum á næsta ári?
Sebastian Vettel, Daniil Kvyat og Kimi Raikkonen í Singapúr. Ætli það verði Ferrari vél í Red Bull bílnum á næsta ári? Vísir/Getty
Ferrari hefur nú boðið Red Bull aftur að samningaborðinu. Red Bull hefur enn ekki orðið sér út um vél fyrir næsta ár en líkurnar eru nú með liðinu.

Líklega er Red Bull enn að reyna að fá Renault til að skrifa undir samning um að skaffa Red Bull vélar sem liðið myndi svo þróa óháð Renault.

Formaður stjórnar Ferrari, Sergio Marchionne hefur nú rétt Red Bull líflínu. Hann er reiðubúinn að gera sambærilegan samning við Red Bull og gerður hefur verið við Toro Rosso, systurlið Red Bull.

Sá samningur hefur ekki enn verið tilkynntur en hann er talinn í höfn. Hann kveður á um að veita liðunum aðgang að vél sem verður þá ársgömul. Marchionne gaf því undir fótinn að Red Bull gæti hugsanlega fengið að þróa vélina sem hluti að sérstöku verkefni. Verkefnið yrði alveg sjálfstætt frá eigin vélaþróun Ferrari. Ferrari myndi þó sennilegast vilja nota góðar hugmyndir Red Bull í sína eigin vél.

Hugmyndin er í einfaldri mynd sú að Ferrari haldi áfram að þróa 2015 vél sína og selji Red Bull hana. Red Bull myndi hafa aðkomu að hönnuninni. Sú aðkoma er sennilega heillandi fyrir Ferrari.

Piero Ferrari og Sergio Marchionne ræða saman í bílskúrnum á heimakeppni Ferrari á Ítalíu.Vísir/Getty
„Möguleikin að vinna með Red Bull að þróun vélarinnar er góður kostur. En það yrði ekki gert í því samhengi að Ferrari væri að skaffa Red Bull vélar sem væru hliðstæðar þeim sem Ferrari notar í sínum bílum,“ sagði Marchionne.

„Við gætum aðstoðað með verkfræðiþekkingu og annarri þjónustu er varðar véina í sjálfstæðu verkefni fyrir Red Bull, við gætum veitt þeim okkar bestu þjónustu, það gæti gert Red Bull og fleiri framleiðendum kleift að nota vélarnar. Þær yrðu þó aldrei orðið sömu v´lear og Ferrari notar,“ sagði Marchionne.

Marchionne hefur að eigin sögn látið liðseiganda Red Bull, Dietrich Mateschitz vita. Óvíst er hvernig hann tekur tilboðinu, hann hefur áður hafnað tilboði Ferrari einmitt af því vélarnar sem til boða voru, voru ekki eins og þær sem Ferrari ætlaði að nota.


Tengdar fréttir

Haas: Undirvagninn okkar betri en Ferrari

Gene Haas, eigandi Haas F1 liðsins sem hefur keppni í Formúlu 1 á næsta ári segir a undirvagn liðs síns verði líklegast betri en undirvagn Ferrari liðsins.

Ferrari beitir neitunarvaldi

FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandið lagði til að verðþak yrði sett á vélar fyrir komandi tímabil. Ferrari beitti neitunarvaldi í málinu.

Red Bull vill semja við Renault aftur

Red Bull hefur ekki tekist að semja við neinn annan vélaframleiðanda í Formúlu 1 að undanförnu og snýr sér nú aftur til Renault.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×