Erlent

Flugu sprengjuvélum yfir manngerðu eyjarnar

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/epa
Yfirvöld í Kína hafa ítrekað viðvaranir sínar til Bandaríkjahers um að halda sig fjarri manngerðu eyjunum í Suður-Kínahafi. Tveimur B-52 sprengjuflugvélum var flogið yfir eyjarnar á dögunum, sem valdið hefur enn meiri spennu á milli ríkjanna tveggja.

Kínversk yfirvöld hafa varað Bandaríkjamenn við að til átaka gæti komið, haldi herinn áfram að starfa á svæðinu. Stjórnvöld í Bandaríkjunum gefa þó lítið fyrir þessar viðvaranir og segjast ætla að halda áfram að fljúga, sigla og starfa á öllum þeim svæðum sem alþjóðalög ná yfir.

Bandarískt herskip sigldi fyrr í mánuðunum nærri umræddum eyjum, en mjög er deilt um yfirráðarétt yfir svæðinu. Í kjölfarið sendu ráðamenn í Kína Bandaríkjamönnum tóninn og sögðu að þeir skyldu hugsa sig tvisvar um áður en þeir reyndu slíkt aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×