Formúla 1

Mercedes átti föstudaginn í Brasilíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg var fljótastur á seinni æfingu dagsins.
Nico Rosberg var fljótastur á seinni æfingu dagsins. Vísir/Getty
Lewis Hamilton var fljótastur á fyrri æfingu dagsins. Liðsfélagi hans hjá Mercedes, Nico Rosberg var fljótastur á seinni æfingunni. Ferrari menn eru næstir í röðinni.

Hamilton var lang fljótastur á fyrri æfingunni. Hann var rúmlega hálfri sekúndu á undan liðsfélaga sínum. Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji og Daniel Ricciardo varð fjórði á Red Bull.

Hamilton hefur ekki látið árekstur sem hann lenti í, í vikunni hafa áhrif á sig. Hann klessti Pagani Zonda bíl sinn í Mónakó.

18 hröðustu ökumenn æfingarinnar voru allir á sömu 2,2 sekúndunum. Kimi Raikkonen var fimmti á Ferrari og fyrsti maðurinn sem var yfir sekúndu á eftir Hamilton. Það er því þéttur pakki á eftir Mercedes, tímatakan verður væntanlega afar spennandi.

Vandræði Fernando Alonso virðast halda áfram. Honda vélin gafst upp á seinni æfingunni.Vísir/Getty
Rosberg var fljótastur á seinni æfingunni, Hamilton varð annar, tæplega hálfri sekúndu á eftir Rosberg. Vettel var eini sem náði að vera innan við sekúndu á eftir Rosberg að Hamilton frátöldum.

Baráttan fyrir aftan Mercedes var áfram þétt og 1,8 sekúndur skildu að Vettel í þriðja sæti og Fernando Alonso á McLaren í 18 sæti.

Alonso þurfti reyndar að hætta þátttöku á seinni æfingunni, Honda vélin virtist gefa sig í McLaren bílnum.

Bein útsending frá tímatökunni í Brasilíu hefst klukkan 15:50 á Stöð 2 Sport 3. Keppnin er svo í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, útsendingin hefst klukkan 15:30 á sunnudag.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort með öllum úrslitum helgarinnar.


Tengdar fréttir

Haas: Undirvagninn okkar betri en Ferrari

Gene Haas, eigandi Haas F1 liðsins sem hefur keppni í Formúlu 1 á næsta ári segir a undirvagn liðs síns verði líklegast betri en undirvagn Ferrari liðsins.

Red Bull vill semja við Renault aftur

Red Bull hefur ekki tekist að semja við neinn annan vélaframleiðanda í Formúlu 1 að undanförnu og snýr sér nú aftur til Renault.

Ferrari býður Red Bull líflínu

Ferrari hefur nú boðið Red Bull aftur að samningaborðinu. Red Bull hefur enn ekki orðið sér út um vél fyrir næsta ár en líkurnar eru nú með liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×