Formúla 1

Nico Rosberg náði fimmta ráspólnum í röð

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg var fljótastur í dag.
Nico Rosberg var fljótastur í dag. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes verður á ráspól í brasilíska kappakstrinum á morgun. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar í tímatökunni og Sebastian Vettel á Ferari varð þriðji.

Fernando Alonso fékk skilaboðin „Stoppaðu strax, stoppaðu strax,“ í fyrstu lotu tímatökunnar. McLaren bíllinn var ekki í sínu besta formi um helgina.

Alonso tillti sér á tjaldstól við hlið brautarinnar og horfði á tímatökuna þaðan.

Valtteri Bottas á Williams fór inn í tímatökuna vitandi að hann fengi þriggja sæta víti eftir hana. Hann tók fram úr Felipe Nasr undir rauðum flöggum á æfingu í gær. Daniel Ricciardo fær líka víti, Red Bull bíllinn þurfti enn eina vélina.

Í fyrstu lotu duttu Manor ökumennir út ásamt McLaren mönnum og Pastor Maldonado á Lotus.

Sebastian Vettel tróð sér inn á milli Mercedes mannanna í sinni atlögu í annarri lotu.

Romain Grosjean snéri Lotus bílnum undir lok lotunnar, hann var heppinn að sleppa við varnarvegg. Grosjean gat haldið áfram en endaði samt 15 og komst ekki áfram í þriðju lotu.

Romain Grosjean átti ekki góða tímatöku og var ekki viss hvað olli snúningnum.Vísir/Getty
Mercedes og Ferrari gáfu sínum ökumönnum bara eitt tækifæri en það dugði og dekkin sem þeir byrja keppnina með undir á morgun því í fínu formi.

Sauber ökumennirnir duttu út í annarri lotu ásamt Carlos Sainz á Toro Rosso, Sergio Perez á Force India og Grosjean á á Lotus.

Baráttan um ráspól í þriðju lotu byrjaði á því að Rosberg setti besta tíma helgarinnar í fyrstu tilraun. Hamilton var tæpum tíunda úr sekúndu á eftir.

Hamilton komst ekki hraðar en Rosberg sem bætti bara í á síðasta hringnum.

Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 15:30 á morgun á Stöð 2 Sport.

Hér fyrir neðan má sjá öll úrslit helgarinnar sem uppfærast eftir því sem á líður.




Tengdar fréttir

Haas: Undirvagninn okkar betri en Ferrari

Gene Haas, eigandi Haas F1 liðsins sem hefur keppni í Formúlu 1 á næsta ári segir a undirvagn liðs síns verði líklegast betri en undirvagn Ferrari liðsins.

Mercedes átti föstudaginn í Brasilíu

Lewis Hamilton var fljótastur á fyrri æfingu dagsins. Liðsfélagi hans hjá Mercedes, Nico Rosberg var fljótastur á seinni æfingunni. Ferrari menn eru næstir í röðinni.

Ferrari býður Red Bull líflínu

Ferrari hefur nú boðið Red Bull aftur að samningaborðinu. Red Bull hefur enn ekki orðið sér út um vél fyrir næsta ár en líkurnar eru nú með liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×