Innlent

Klofningur í röðum lögreglu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögreglumenn gengu fylktu liði til mótmæla fyrr á árinu.
Lögreglumenn gengu fylktu liði til mótmæla fyrr á árinu. Vísir/Vilhelm
Guðmundur Fylkisson, formaður kjörstjórnar Landssambands lögreglumanna segir að kurr sé í lögreglumönnum vegna niðurstöðu atkvæðagreiðslu félagsmanna LL um nýja kjarasamninga sem birt var í dag.

„Ég dáist að stéttinni minni og ég er ánægður með það að svona stór hluti skuli segja sína skoðun. Þeir setja okkur alveg hinsvegar í hrikalega stöðu að þurfa að fást við það að vera alveg svona klofin,“ segir Guðmundur í samtali við Vísi.

Það dró heldur betur til tíðinda en fleiri félagsmenn LL sögðu nei við samningnum en já. Samningurinn var hinsvegar samþykktur, eða réttara sagt, ekki felldur, vegna þess að meirihluti félagsmanna hafnaði samningunum ekki.

„Það þarf meirihluta greiddra atkvæða til þess að fella samninginn. Það voru 672 sem greiddu atkvæði sem þýðir að það hefði vantað fimm eða fleiri atkvæði nei-megin til þess að að fella hann.“

Önnur eins kosningaþátta sjaldan sést áður

Í raun og veru voru það auðu seðlarnir, ellefu talsins, sem réðu úrslitum en vegna þeirra taldist meirihluti félagsmanna ekki hafa samþykkt samninginn. Kosningarnar voru mikið hitamál og sést það best á kosningaþáttökunni en Guðmundur segir að önnur eins þáttaka hafi ekki sést áður en kosningaþáttaka var 94,35 prósent.

„Við eru með þjónustuaðila sem sér um þetta fyrir og okkur og fjölda annarra stéttafélaga. Sá hefur aldrei séð aðra eins þáttöku. Þú sérð það að það eru 38 af allri stéttinni sem taka ekki þátt.“

Athygli vekur að félagsmenn bæði Sjúkraliðafélags Íslands og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu samþykktu sína kjarasamninga með talsverðum meirihluta en þessi félög voru í samfloti við Landssamband lögreglumanna í kjaradeilu sinni við ríkið. Guðmundur segir það ekki segja alla söguna.

„Þó að við höfum verið í samfloti með þessum stéttarfélögum þá eru bara sumir hlutir sem voru sameiginlegir og aðrir eru sérkröfuhlutar og það er þá nokkuð ljóst að sérkröfuhlutinn er eitthvað sem hópurinn er ósáttur með. Það eru 315, í það minnsta, skoðanir á því sem hefði getað betur farið í kjarasamningunum.“

Lögreglumenn klofnir í afstöðu sinni

Það er ljóst að lögreglumenn eru klofnir í afstöðu sinni til kjarasamningana. „Þetta eru tvær fylkingar sem eru ekki sammála og það fer ekkert á milli mála,“ segir Guðmundur.

„Stemningin er nákvæmlega í þessum anda. Það eru einhverjir að skoða hvort að það sé hægt að kæra þessa niðurstöðu.“


Tengdar fréttir

Skrifuðu undir í nótt - verkfalli aflýst

Samningar náðust í kjaradeilu sjúkraliða, SFR og lögreglumanna við ríkið um klukkan fimm í nótt. Samningurinn felur í sér allt að 30 prósenta launahækkun á næstu fjórum árum.

Þrjátíu prósenta launahækkun og styttri vinnuvika

Félagsmenn SFR stéttarfélags, Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands lögreglumanna munu á næstu þremur árum fá allt að þrjátíu og tveggja prósenta launahækkun. Þá munu félögin taka þátt í tilraunaverkefni sem miðar að því að stytta vinnuvikuna um fjórar klukkustundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×