Sundferðin langdýrust í Reykjavík Ingvar Haraldsson skrifar 10. október 2015 07:00 Mannmörg Laugardalslaug. Gestir hennar og annarra sundlauga í Reykjavík munu þurfa að greiða talsvert meira fyrir staka sundferð en í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. vísir/gva
Eftir að gjaldskrárhækkanir Reykjavíkurborgar í sund taka gildi verður 60 prósentum dýrara fyrir fjögurra manna fjölskyldu að fara í sund í Reykjavík en í Hafnarfirði sé greitt fyrir staka ferð. Fulltrúar annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu segja enga umræðu hafa farið fram um að hækka gjaldskrár í sund. Hins vegar standi vinna að fjárhagsáætlun fyrir næsta ár yfir og þar verði allar gjaldskrár teknar til skoðunar og því sé ekki hægt að útiloka verðskrárhækkanir á næsta ári. Sé miðað við fjögurra manna fjölskyldu, tvo fullorðna og tvö börn, eitt sex ára og annað tólf ára, mun sundferðin í Reykjavík, eftir að gjaldskrárhækkun tekur gildi, kosta 2.080 krónur en um 1.300 krónur í Hafnarfirði, 1.330 krónur í Kópavogi og Garðabær og 1.350 krónur í Mosfellsbæ. Næstdýrast er fyrir fjölskylduna að fara í sund á Seltjarnarnesi en ferðin mun kosta hana 1.440 krónur. Í Hafnarfirði eru hins vegar rukkaðar 100 krónur aukalega fyrir hvern fullorðinn einstakling sem ætlar í gufubað. Þá hækkar sundferðin í 1.500 krónur og verður næstdýrust. Mun minni verðmunur er milli 10 skipta korta og árskorta en stakra sundferða. Tíu skipta kort er dýrast í Kópavogi en þar kostar það 4.700 krónur. Hins vegar fást 2.500 krónur endurgreiddar sé rafrænu korti sem notað er til að greiða fyrir hverja ferð skilað. Ódýrast er tíu skipta kortið í Hafnarfirði þar sem það kostar 3.300 krónur. Það sama er rukkað í Mosfellsbæ en þar þurfa notendur að greiða 570 krónur sérstaklega fyrir Moskortið sem sundferðirnar eru fylltar á. Þá kostar tíu skipta kort í Garðabæ 3.600 krónur, 4.000 krónur á Seltjarnarnesi og 4.300 krónur í Reykjavík. Árskortið í Garðabæ er dýrast en það kostar 32.000 krónur og litlu minna í Reykjavík og Mosfellsbæ. Ódýrast er árskortið í Hafnarfirði þar sem það kostar 25.200 krónur. Fyrir börn er ódýrast að fara í sund á Seltjarnarnesi þar sem ferðin kostar 120 krónur en dýrast í Mosfellsbæ og Kópavogi þar sem sundferðin kostar 150 krónur. Hins vegar er misjafnt milli sveitarfélaga hvenær byrjað er að rukka fyrir börn í sund. Börn í Hafnarfirði eru rukkuð frá 5 ára aldri en ekki fyrr en við 11 ára aldur í Garðabæ.
Tengdar fréttir Formaður ÍTR: Hækkun á stökum miðum ekki hluti af stærra verðhækkunarplotti "Þetta á síst að bitna á þeim sem fara reglulega í sund, stærstu notendum sundlauganna,“ segir Þórgnýr Thoroddsen, formaður ÍTR. 9. október 2015 10:37 Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Fleiri fréttir Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Sjá meira
Formaður ÍTR: Hækkun á stökum miðum ekki hluti af stærra verðhækkunarplotti "Þetta á síst að bitna á þeim sem fara reglulega í sund, stærstu notendum sundlauganna,“ segir Þórgnýr Thoroddsen, formaður ÍTR. 9. október 2015 10:37