Stjórnvöld verða að grípa til aðgerða strax Svavar Hávarðsson skrifar 6. október 2015 07:45 Bryndís Snæbjörnsdóttir „
Forræðishyggja og skert sjálfræði er því miður daglegur veruleiki hjá allt of mörgum einstaklingum með þroskahömlun og við höfum barist fyrir því um árabil að við því verði brugðist með viðeigandi hætti og mögulegum úrræðum,“ segir Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar, spurð um nýja rannsókn sem sýnir hversu mjög sjálfræði fólks með þroskahömlun er skert og Fréttablaðið sagði frá á föstudag. Rannsóknin sýnir svart á hvítu að skerðing sjálfræðis nær til allra daglegra athafna, fjármála, búsetu og persónulegra sambanda við aðra. Bryndís bendir á baráttumál Þroskahjálpar sem er að húsnæði og þjónusta verði aðskilin og að fólk hafi val um með hverjum það býr, en sé ekki skikkað til að búa í þar til gerðu húsnæði „með fólki sem það kærir sig jafnvel alls ekki um að búa með“. Í desember 2010 var samþykkt á Alþingi reglugerð 1054/2010 um þjónustu við fatlað fólk á heimili. Samkvæmt reglugerðinni á fólk að hafa val um hvar það býr og með hverjum. „En því miður eru allt of mörg dæmi um að svo sé alls ekki. Okkur finnst því mjög brýnt að skoðað verði hver er framfylgd þessarar mikilvægu reglugerðar og að ríki og sveitarfélög tryggi að fatlað fólk njóti í raun þeirra lagalegu réttinda sem þar er mælt fyrir um,“ segir Bryndís og bætir við að í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sé jafnframt kveðið á um þennan rétt á mjög afgerandi hátt. „Leiðarstefið í samningnum er réttur fatlaðs fólks til að lifa sjálfstæðu lífi og fá að taka ákvarðanir um eigið líf. Við eigum enn mjög langt í land með að uppfylla þessi ákvæði. Það er alveg ljóst að það þarf að eiga sér stað hugarfarsbreyting í samfélaginu til að þessi markmið samningsins verði uppfyllt,“ segir Bryndís. „Ráðamenn þjóðarinnar þurfa að viðurkenna þennan rétt og jafnhliða því að tryggja nægilegt fjármagn til þjónustu við fatlað fólk. Fyrr verður ekki hægt að uppfylla þessi sjálfsögðu mannréttindi. Fyrr er alls ekki hægt að líta svo á að manngildi fólks með þroskahömlun njóti viðurkenningar og virðingar í samfélaginu. Þetta þurfa stjórnvöld að horfast í augu við og grípa til nauðsynlegra aðgerða með lögum og reglum, fjárveitingum, stjórnsýsluframkvæmd og skilvirku eftirliti með framkvæmdinni.“Höfum ekki fullgilt samninginn • Ísland undirritaði samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (CRPD) 30. mars 2007. Markmið samningsins er að efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra. • Af þeim 155 aðilum sem undirrituðu samninginn hafa 132 aðilar fullgilt hann. Í þeim hópi eru Danmörk, Svíþjóð og Noregur ásamt flestum öðrum Evrópuþjóðum. • Alþingi samþykkti hinn 11. júní 2012 framkvæmdaáætlun um málefni fatlaðs fólks. Á grundvelli hennar hefur innanríkisráðuneytið leitt vinnu samstarfsnefndar ráðuneyta við að undirbúa fullgildingu samningsins.
Tengdar fréttir Í aðgerð án nauðsynlegra upplýsinga Mannréttindi fólks með þroskahömlun eru verulega skert þar sem sjálfræði þeirra í daglegu lífi er mjög takmarkað. Nýlegar ófrjósemisaðgerðir á konum sem gera sér ekki grein fyrir að aðgerðin er varanleg. 2. október 2015 08:00 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
Í aðgerð án nauðsynlegra upplýsinga Mannréttindi fólks með þroskahömlun eru verulega skert þar sem sjálfræði þeirra í daglegu lífi er mjög takmarkað. Nýlegar ófrjósemisaðgerðir á konum sem gera sér ekki grein fyrir að aðgerðin er varanleg. 2. október 2015 08:00