Fótbolti

Pólland og Þýskaland á EM | Írland fer í umspilið

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Pólverjar fagna sigri í kvöld.
Pólverjar fagna sigri í kvöld. Vísir/Getty
Pólland komst í kvöld í lokakeppni EM í þriðja skiptið í röð eftir 2-1 sigur á Írlandi á heimavelli í kvöld en Robert Lewandowski skoraði sigurmark Póllands í kvöld.

Um var að ræða hreinan úrslitaleik upp á hvort liðið fengi sæti á EM næsta sumar en leikmenn írska liðsins vissu að 2-2 jafntefli myndi duga liðinu til þess að fá beint sæti í lokakeppninni næsta sumar.

Grzegorz Krychowiak kom Póllandi yfir á 13. mínútu en Jon Walters jafnaði metin nokkrum mínútum síðar af vítapunktinum. Þegar allt virtist stefna í að liðin færu jöfn inn í hálfleikinn tókst Robert Lewandowski að bæta við öðru marki Póllands í leiknum.

Var þetta sjötti leikurinn í röð sem hann skorar í og níundi af síðustu tíu en í síðustu sex leikjum hefur hann skorað 15 mörk á aðeins þremur vikum.

Írska liðið reyndi að færa sig framar á völlinn eftir því sem leið á leikinn en árangurs og fögnuðu leikmenn pólska liðsins sigri að lokum. Fékk fyrirliði Írlands, John O'Shea, sitt seinna gula spjald á 90. mínútu.

Í Þýskalandi lentu heimamenn í óvæntum vandræðum gegn Georgíu í Leipzig en sigurmark Þýskalands kom tíu mínútum fyrir leikslok í 2-1 sigri. Var þar að verki Max Kruse eftir að Jaba Kankava jafnaði metin fyrir Georgíu.

Sigur Þýskalands tryggði ríkjandi heimsmeisturunum sæti á EM næsta sumar en í lokaleik D-riðilsins vann Skotland öruggan 6-0 sigur á Gíbraltar.

Úrslit kvöldsins:

Gíbraltar 0-6 Skotland

Pólland 2-1 Írland

Þýskaland 2-1 Georgía

Lokastaða D-riðilsins:

Þýskaland 22 stig

Pólland 21 stig

Írland 18 stig

Skotland 15 stig

Georgía 9 stig

Gíbraltar 0 stig

Þjálfari Pólverja, Adam Nawalka, fékk flugferð í leikslok.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×