Fótbolti

Cristiano Ronaldo skoraði mark númer 500 gegn Kára | Sjáðu markið

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo skoraði í kvöld sitt 500. mark á ferlinum er hann kom Real Madrid yfir gegn Kára Árnasyni og félögum í Malmö.

Ronaldo sem hefur leikið með Real Madrid, Manchester United, Sporting Lisbon og portúgalska landsliðinu á ferlinum var að skora sitt 500. mark á ferlinum og mark númer 322 í herbúðum Real Madrid.

Hægt er að fylgjast með gangi mála í leiknum sem fer fram á heimavelli Malmö hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×