Fótbolti

Ronaldo sá um Kára og félaga | Sjáðu mark númer 500 hjá Ronaldo

Cristiano Ronaldo skoraði bæði mörk Real Madrid í 2-0 sigri á Kára Árnasyni og félögum í Malmö í Svíþjóð í kvöld en fyrra markið var mark númer 500 á ferlinum hjá portúgölsku stórstjörnunni.

Rafa Benitez tefldi fram sterku liði á Swedbank Stadion í kvöld en í spænska liðinu voru leikmenn á borð við Toni Kroos, Karim Benzema og að sjálfsögðu Ronaldo.

Ronaldo kom Real Madrid í fyrri hálfleik en hann fékk nokkur tækifæri til að bæta við marki í seinni hálfleik án árangurs.

Verkefnið varð ómögulegt fyrir Malmö þegar Yoshimar Yotun, miðjumaður liðsins, fékk seinna gula spjald sitt korteri fyrir leikslok og lék sænska liðið manni færri síðustu mínúturnar.

Ronaldo gerði endanlega út um leikinn með öðru marki sínu í leiknum á seinustu mínútu venjulegs leiktíma. Var það mark númer 323 á ferlinum hjá Real Madrid og jafnaði hann með því markamet félagsins sem var í eigum Raul. Má sjá seinna markið hér fyrir neðan.

Malmö er því án stiga eftir tvær umferðir en Ronaldo og félagar, líkt og Paris Saint-Germain, eru með fullt hús stiga á toppi A-riðilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×