Formúla 1

Magnussen: Ég myndi elska að aka fyrir Haas F1

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Kevin Magnussen hefur mikla reynslu að bjóða liðum sem vantar ökumenn.
Kevin Magnussen hefur mikla reynslu að bjóða liðum sem vantar ökumenn. Vísir/getty
Kevin Magnussen, fyrrum ökumaður McLaren liðsins hefur sagt að hann „myndi elska að aka fyrir Haas“ að því gefnu að hann fái ekki sæti hjá McLaren á næsta ári.

Magnussen hefur engann áhuga á að sitja áfram á hliðarlínunni á næsta ári. Hann hefur verið varaökumaður liðsins í ár, eftir að Fernando Alonso kom til liðsins í upphafi tímabilsins. Magnussen þráir að komast bakvið stýrið. Eric Boullier, keppnisstjóri McLaren hefur lýst því yfir að liðið vilji halda Jenson Button áfram við hlið Alonso á næsta ári. Í kjölfarið hefur Magnussen hafið leit að keppnissæti.

Gene Haas, eigandi Haas F1 liðsins hefur sagt að hann vilji reyndan ökumann við hlið varaökumanns Ferrari, sem á frátekið sæti hjá liðinu. Líklega verður það Esteban Gutierrez. Magnussen telur sjálfan sig smell passa í sætið við hlið Gutierrez.

„Ég segi ekki meira en þetta - það hefur komið víða fram að Haas er með mig í huga. Gene viðurkenndi það í viðtali nýlega,“ sagði Magnussen.

„Ég held að Gene og Gunther (Steiner, liðsstjóri) séu mjög klárir menn og aðferðin sem þeir eru að nota til að koma af stað nýju F1 liði er snjöll og frumleg. Svo, já ef McLaren getur ekki boðið mér keppnissæti á næsta ári myndi ég elska að aka fyrir Haas F1,“ sagði Magnussen.

Magnussen telur reynsluna sem hann hefur öðlast á sex árum hjá McLaren afar mikilvæga og vega þungt þegar lið horfa á hann sem hugsanlegan ökumann sinn.

„Augljóslega eru Fernando og JB frábærir ökumenn, heimsmeistarar, svo það er ekki hægt að ásælast Ron (Dennis) og Eric fyrir að vilja halda þeim báðum. Þeir hafa hins vegar sagt að hafi þeir ekki sæti til að bjóða mér, þá muni þeir ekki hindra mig í að fara annað og ég kann að meta það,“ sagði hinn danski Magnussen að lokum.


Tengdar fréttir

Alonso ekki með í Ástralíu

Fernando Alonso ökumaður McLaren liðsins hefur ákveðið að taka ekki þátt í ástralska kappakstrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×