Leigir þessi af þér á Airbnb? Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. júlí 2015 11:52 Vísir/skjáskot
Er mannkynið gott í eðli sínu? Er því yfirhöfuð treystandi - hvað þá fyrir heimili manns? Þessum spurningum reyndi vefsíðan Airbnb að leita svara við í nýrri auglýsingaherferð sem var ýtt úr vör fyrr í mánuðnum. Í flaggskipi herferðarinnar má sjá kornabarn í bleyju sem kjagar í átt að útidyrahurðinni meðan kvenmannsrödd les upp heimspekilegar vangaveltur yfir dramatískum undirleik. Netverjar skilja hvorki upp né niður í auglýsingunni, sem má sjá hér að neðan, og rúmlega 28 prósent þeirra sem gefið hafa myndbandinu einkunn sagst vera ósáttir við það. „Bíddu, leigði barnið þetta hús á Airbnb? Hvað þýðir þetta eiginlega?“ spyr einn í athugasemdakerfinu fyrir neðan meðan annar hefur töluvert meiri áhyggjur af því að foreldrar þess kunni að hafa gleymt því einu heima. Húmoristarnir í Portal A hafa nú gert sprenghlægilega, en um leið töluvert raunverulegri endurgerð af myndbandinu þar sem barninu hefur verið skipt út fyrir mann á nærbuxunum einum fata. Hann kjagar einnig, að öllum líkindum timbraður eftir drykkju gærkvöldsins, með viskíglas í hönd meðan sögumaðurinn segir sögur af því hvernig hann horfði á klám í eldhúsinu þínu og mun smita þig af útbrotunum sem hann er með. Myndböndin tvö fylgja hér að neðan, hið húmoríska fyrst og upprunalega auglýsing Airbnb þar fyrir neðan til samanburðar.
Mest lesið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Forrest Gump rokksins allur Tónlist Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fleiri fréttir Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Sjá meira